Innlent

Lamdi stúlku og braut bílrúðu

Akureyri. Mynd úr safni.
Akureyri. Mynd úr safni.

Lögreglan á Akureyri hafði afskipti af tvítugum dreng á skemmtistað í miðbænum í nótt. Sá hafði ráðist á stúlku, og þegar þrjár vinkonur hennar reyndu að stilla til friðar réðst hann einnig að þeim og veitti öllum fjórum minniháttar áverka.

Þegar drengurinn gekk út af skemmtistaðnum var honum heitt í hamsi og braut rúðu í nærliggjandi bíl.

Lögregla telur víst að drengurinn hafi verið undir áhrifum vímuefna, en hann var að sögn fámáll um ástæður árásarinnar.

Árásin hefur ekki verið kærð en drengurinn gisti fangageymslur. Nokkur fjöldi er í bænum vegna vetrarhátíðarinnar Éljagangs, en að sögn voru þó fáir úti við vegna veðurs.

Lögreglan á Akureyri tók einnig einn ökumann fyrir ölvunarakstur, en að öðru leyti fór nóttin vel fram á Norðurlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×