Leikstjórinn fékk tvö göt á höfuðið á tökustaðnum 1. mars 2011 04:00 Þorsteinn var í gervi manns með brunasár í andliti þegar gert var að raunverulegum sárum hans. "
Þetta voru náttúrulega slys, eins og gerast," segir leikstjórinn Þorsteinn Gunnar Bjarnason. Þorsteinn fékk tvö göt á höfuðið á einum og sama deginum við tökur á stuttmyndinni Bellu í síðustu viku. Hann leikstýrir myndinni og fer einnig með hlutverk eiginmanns söng- og leikkonunnar Nönu Alfreðsdóttur. Í einu atriðanna skvettir persóna Nönu sjóðandi feiti framan í andlit eiginmanns síns og lemur hann svo í höfuðið með pönnu. Ekki vildi betur til en að hann fékk pönnuna í höfuðið og hlé var gert á upptökum á meðan blæðingin var stöðvuð. Nana þurfti svo að lemja hann aftur í höfuðið með pönnunni, en hún og Þorsteinn voru ekki nógu vel samstillt sem varð til þess að hann fékk stórt gat á höfuðið þegar pannan skall á honum. "Þetta var ekki nógu vel æft og því fór sem fór," segir Þorsteinn. Vegna flensu í leikarahópnum varð að fresta tökum á myndinni um eina helgi. Það varð svo til þess að maðurinn sem átti að stýra ofbeldisatriðunum var ekki á landinu þegar þau voru tekin upp. "Það var ekki búið að plana þetta nógu vel," segir Þorsteinn. "Þetta var engum að kenna. Fólk missti sig í æsingnum. Það þarf svo lítið til, ég fór til dæmis með hausinn aðeins og nálægt og fékk pönnuna í mig."En eru þetta mestu barsmíðar sem þú hefur orðið fyrir? "Já. Allavega frá konu - það er alveg ljóst. Og með búsáhöldum líka," segir Þorsteinn léttur og bætir slysin hafi ekki orðið til þess að hann leggji fyrir sig áhættuleik. "Ef það er einhver tími til að hætta við það, þá er það eftir þetta." Þorsteinn var afar ófrýnilegur að sjá þegar gera átti að sárum hans. Búið var að setja hann í gervi manns með skaðbrennt andlit, sem varð til þess að þegar á heilsugæsluna var komið þurfti að láta heilbrigðisstarfsfólk vita að það ekki þyrfti að gera að brunasárunum. "Þetta gekk mjög vel, þó að það hafi gengið á ýmsu. Þetta voru mjög góðar tökur," segir Þorsteinn. Þorsteinn sendi síðast frá sér gamanmyndina Jóhannes með Ladda í aðalhlutverki. Bella er að hans sögn tragíkómedía. "Þetta er svolítið súrrealísk mynd," segir hann. "Blanda af öllu með svörtum húmor." atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Lífið Sigrún Ósk mætt á RÚV Lífið TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Lífið Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fleiri fréttir Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Sjá meira