Dæmdir fyrir hrottalega árás á gamlan mann með ungbarn 1. mars 2011 09:25 Axel Karl og Viktor Már við aðalmeðferð í Barðastrandarmálinu svokallaða þar sem þeir voru einnig dæmdir
Tveir rúmlega tvítugir menn voru í Héraðsdómi Reykjaness í morgun dæmdir til fangelsisvistar fyrir aðild sína að hrottalegri árás á 64 ára gamlan karlmann, eiginkonu hans og dóttur í Reykjanesbæ. Mennirnir sem um ræðir heita Axel Karl Gíslason, sem dæmdur var til tveggja og hálfs árs fangelsisvistar, og Viktor Már Axelsson sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi. Axel og Viktor voru einnig dæmdir fyrir fjárkúgun eftir að þeir innheimtu skuld sem þeir töldu barnabarn mannsins í Reykjanesbæ skulda sér. Maðurinn var staddur fyrir utan hús sitt og var að setja kornabarn dóttur sinnar inn í bíl þegar piltarnir réðust að honum. Var honum hótað lífláti með hnífi auk þess sem hann var kýldur í andlit og ítrekað sparkað í líkama hans og höfuð. Þriðji maðurinn var dæmdur fyrir að hóta lögreglumönnum og fjölskyldu þeirra lífláti. Hann var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi. Sá fjórði var dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir aðild sína að þjófnaði en hann rauf þar með skilorð. Axel og Viktor afplána nú fangelsisdóm vegna þáttar síns í Barðastrandarmálinu svokallaða þar sem gengið var í skrokk á öldruðum úrsmið og honum haldið föngnum á heimili sínu.
Mest lesið Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Innlent Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Innlent Trump hrósaði forsetanum fyrir færni í eigin móðurmáli Erlent Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Innlent Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Innlent Kvarta yfir því að reykur frá Kanada sé að skemma sumarið Erlent Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Innlent „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Innlent Stúlkur látnar afklæðast til að athuga með blæðingar Erlent Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Innlent Fleiri fréttir Segir forseta ekki hafa upplýst um lengd þingfundar „Þjóðin þarf að fá að vita hvernig þau hafa hagað sér á bak við tjöldin“ Þykir leitt að hafa valdið uppnámi Ávarp forsætisráðherra og kjarnorkukafbátur við Grundartanga Minnihlutinn hafi lagt fram eigið veiðigjaldamál: „Þetta er skrumskæling á lýðræðinu“ Spyr hvort draga eigi valdhafa undir húsvegg og skjóta Fangaverðir á sjúkrahús eftir hópárás fanga Sauð upp úr þegar Bryndís sagði Hildi fylgja vinnureglum Óvænt ávarp forsætisráðherra: „Við munum verja lýðveldið Ísland“ Jökulhlaup úr Mýrdalsjökli í Leirá Syðri og Skálm enn í gangi Telur sig hafa orðið vitni að aðdraganda drápsins Borgarbúar frekar hlynntir kílómetragjaldi en landsbyggðin Aðilar „einfaldlega ekki tilbúnir að teygja sig nógu langt“ Tveir menn fjárkúguðu ungan dreng Fundu jöklafýlu í Þórsmörk vegna hlaupsins Metnaðarfullar malbikunarauglýsingar hluti af væb-kúltúrnum Mátti ekki lána sér pening úr eigin fyrirtæki Pilturinn er fundinn „Skýr vísbending um að gera þurfi betur í málefnum erlendra barna“ Sjúklingar óttist dómhörku vegna þyngdarstjórnunarlyfja „Það er engin ástæða til að gefast upp“ Reiðarslag fyrir Landsvirkjun, kjarnorkukafbátur og heimsfræg íslensk kisa „Í næstu umferð fara hlutirnir í gegn“ Tilkynnt um buxnalausan mann og stolinn pizzaofn „Það er enginn svartur listi hjá okkur“ Davíð hafi lagt Golíat Hlaup er hafið úr Mýrdalsjökli Ökumaður bifhjólsins látinn Dettifoss vélarvana úti á ballarhafi Flugvél snúið við vegna bilunar Sjá meira