Halldór J. mætir í yfirheyrslu: Það sem ég gerði var í samræmi við lög 16. janúar 2011 14:40 „
Ég er mættur til þess að gefa skýrslu. Á ég ekki að gefa þeim skýrslu sem við mig vilja tala," sagði Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, þegar hann mætti til skýrslutöku hjá sérstökum saksóknara rétt fyrir klukkan tvö í dag. Halldór kom í morgun frá Kanada, þar sem hann er búsettur, til þess að gefa skýrslu hjá sérstökum saksóknara vegna rannsóknar á meintum brotum í rekstri Landsbankans. Fyrrum meðbankastjóri hans, Sigurjón Þ. Árnason, situr í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarinnar sem snýr að meintri markaðsmisnotkun en Sigurjón er einnig grunaður um brot á auðgunarbrotakafla almennra hegningarlaga. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvaða réttarstöðu Halldór hefur. Fréttamenn svifu á Halldór um leið og hann ætlaði að ganga inn til saksóknarans. Við það tækifæri sagði Halldór að hann skyldi tjá sig síðar við fjölmiðla. Hann lét þó hafa eftir sér rétt áður en hann gekk inn í húsakynni saksóknarans: „Allt sem ég hef komið nálægt hef ég gert í samræmi við lög og reglur. Það er mín skoðun." Halldór verður í skýrslutökum í dag en Sigurjón, sem starfaði við hlið hans sem bankastjóri Landsbankans, var í skýrslutökum í sjö tíma í gær og verður yfirheyrður áfram í dag.
Mest lesið Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Innlent Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Innlent Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda Innlent Fleiri fréttir Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Heitavatnslaust í miðborg í kvöld Enn bólar ekkert á fleiri ákærum vegna netverslunar Framkvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið Almenningur ekki talinn eiga rétt á upplýsingum um ETS-sérlausn Barn réðst með belti á önnur börn Hæstiréttur hafnar beiðni Elju um að taka fyrir meiðyrðamál Virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar fær grænt ljós Tóku ákvörðun um að skrá fólk úr flokknum Eiginmaðurinn fékk krabbameinið sem hún hræddist mest Ferðum Íslendinga til útlanda fækkar Hvetur almenning til að vera á varðbergi Náttúruminjasafn og Náttúrufræðistofnun renna saman Uggur í ferðaþjónustu fyrir vestan: „Sjö afbókanir í nótt, fjórar á morgun“ Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Sjá meira