Símastarfsmaður er grunaður um hlerun 10. nóvember 2011 00:01
Póst- og fjarskiptastofnun hefur nú til rannsóknar mál sem varðar meinta símhlerun starfsmanns símafyrirtækis. Þetta staðfestir Hrafnkell Gíslason, forstjóri PFS, við Fréttablaðið. Hann segir þetta mál það fyrsta sinnar tegundar sem stofnunin hafi fengið til athugunar. Því sé ekki lokið en muni ljúka í þessum mánuði. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst sakar fyrrverandi maki starfsmannsins hann um að hafa hlerað síma sinn. Blátt bann er lagt við slíku í fjarskiptalögum og ríkar skyldur lagðar á símafyrirtækin að tryggja leynd fjarskipta. Ekkert utanaðkomandi eftirlit er með framkvæmd símhlerana í þágu rannsókna lögreglu. Póst- og fjarskiptastofnun hefur sett almennar reglur um framkvæmdina en sinnir ekki reglulegu eftirliti. Lítil hópur tæknimanna, sem stjórnendur fyrirtækjanna vita ekki hverjir eru, tengir þau símanúmer sem vilji er til að hlera við lögregluna að undangengnum dómsúrskurði. Engin skipulögð leit fer fram innan fyrirtækjanna að sporum sem hleranir skilja eftir sig. Þetta kemur fram í svörum Símans, Vodafone, Nova og Tals við fyrirspurn Fréttablaðsins um málið. Ásgeir Karlsson, yfirmaður greiningardeildar Ríkislögreglustjóra, bendir á að lögreglan skoði ekki bakgrunn þeirra starfsmanna sem komi að tengingu vegna símhlerana hjá fjarskiptafyrirtækjunum. Úr því þurfi að bæta. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að þarna sé um að ræða brotalöm í kerfinu til verndar réttindum borgaranna, sem verði að laga. -jss, þsj
Mest lesið Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Hormússundi lokað á ný Erlent Fleiri fréttir Flugvél lenti í hvolfi í Mosfellsbæ Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Sinueldur við Vík í Mýrdal Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Sama kona áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Handtekinn grunaður um að hafa ráðist á leigubílstjóra „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Leiðir saman týnda hluti og eigendur þeirra Hefur áhrif að vera háður umönnunaraðilum „Ég var gjörsamlega svo hissa að ég vissi ekki hvert ég ætlaði“ Meirihlutinn fallinn samkvæmt nýrri könnun „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Sjá meira