Innlent

Ólafur og Dorrit bjóða í íslenskar pönnukökur

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Dorrit Moussaief forsetafrú.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Dorrit Moussaief forsetafrú. mynd/Vísir.is
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og Dorrit Moussaief forsetafrú, bjóða erlendum ferðamönnum að þiggja íslenskar pönnukökur í forsetabústaðnum á Bessastöðum á morgun. Þá munu hjónin bjóða gestum sínum að skoða Bessastaðakirkju og fjölskrúðugt fuglalíf í nágrenni Bessastaða.

Heimboðið er liður í markaðsátakinu Inspired by Iceland, en undanfarnar vikur hafa Íslendingar um allt land tekið þátt í átakinu og boðið ferðamönnum að kynnast landi og þjóð með persónulegum hætti.

Heimboð forsetans hefur vakið mikla athygli erlendis, og eru dæmi þess að fólk hafi ferðast hingað til lands gagngert til þess að þiggja þetta boð, segir í tilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×