Barnaníðingur dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi 10. nóvember 2011 16:25 Héraðsdómur Reykjaness.
Karlmaður var dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir kynferðisbrot ungum pilti í Héraðsdómi Reykjaness í dag. Maðurinn játaði að hafa fróað drengum, haft við hann munnmök og látið drenginn fróa sér einu sinni til þrisvar í mánuði yfir margra ára tímabil. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa í 15 til 20 sinnum jafnframt látið drenginn hafa við sig munnmök og fjórum til fimm sinnum haft endaþarmsmök við drenginn gegn hans vilja en samkvæmt ákæru hélt maðurinn meðal annars drengnum til að ná fram vilja sínum. Maðurinn var fundinn sekur fyrir allt ofangreint en var þó sýknaður af því að hafa haft endaþarmsmök við hann, þar sem ekki þótti nægileg sönnun að hann gerst brotlegur með þeim hætti sem lýst er í ákæru. Dómurinn segir að brot mannsins séu mjög alvarleg og sýni einbeittan og markvissan brotavilja. Þau séu unnin skipulega og beinist að ungum dreng sem maðurinn hafi gert sér far um að vingast við til þess að þjóna markmiðum sínum. Maðurinn kynntist drengnum þegar hann var fimm ára gamall en pilturinn nefnir í skýrslutöku atriði þegar hann reyndi hafa við sig endaþarmsmök eftir tíu ára afmælið sitt. Brotin hafa því staðið yfir margra ára skeið. „Ákærði hefur gróflega misnotað þann trúnað sem honum var sýndur. Hafa brotin staðið yfir um árabil án afláts utan þess tíma sem ákærði afplánaði fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot. Sakarferill ákærða er varðaður samkynja brotum sem bera þess skýran vott að ákærði er haldinn alvarlegri og fastmótaðri barnahneigð," segir í dómnum en þar segir einnig að það lýsi sér í kynhneigð til drengja. „Aðstoð sem hann [maðurinn] hefur fengið af þessum sökum hefur engan árangur borið. Þá vekur óhug sú frásögn ákærða [manninum] að þegar hann var að fróa brotaþola [drengnum] á heimili hans hafi hann ekki betur séð að brotaþoli hafi notið þess auk þess að hafa stundum átt upptökin en það hafi verið sitt á hvað. Verður ekki fram hjá því litið ungum drengjum stafar mikil hætta af ákærða eins og dæmin sanna. Ákærði á sér engar málsbætur og ítrekaðar refsingar fyrir kynferðisbrot hafa engan árangur borið. Hann hefur hafist handa við fyrri iðju eins og ráða má af því að hann rýfur tvívegis reynslulausn sem hann hefur fengið og heldur áfram á sömu braut og lætur sér ekki segjast," segir í dómnum. Auk þess að sæta fangelsi í sex og hálft ár voru harðir diskar og geisladiskar sem innihalda barnaklám gerðir upptækir. Maðurinn var dæmdur til að greiða drengnum þrjár milljónir í bætur.
Mest lesið Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Eyvindur P. Eiríksson látinn Innlent Ógilding réttarhaldanna gegn Clancy sett á ís vegna áfrýjunar Erlent Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent
Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Innlent