Innlent

Losa farminn úr flutningaskipinu Ölmu

Í birtingu verður farið að losa farminn úr flutningaskipinu Ölmu, sem var dregin til Fáskrúðsfjarðar um helgina eftir að hún missti stýrið út af Hornafilrði.

Farminum, sem er frystar sjávarafurðir, verður jafn hraðan skipað út í annað erlent frystiskip, sem kom til Fáskrúðsfjarðar í gærkvöldi.

Kafarar hafa ekki getað leitað að stýrinu af Ölmu vegna veðurs í Hornafirði, en heimamenn telja ólíklegt að það finnist. Útgerðir togarns Hoffells og lóðsbátsins á Hornafirði gera kröfur til björgunarlauna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×