Gjöf Ásgeirs forseta á uppboði á Ebay 10. febrúar 2011 09:00 Bréfapressan er auglýst til sölu og er lágmarksboð 400 þúsund krónur. Fjögur tilboð hafa borist frá ónafngreindum aðilum.
Bréfapressa sem Ásgeir Ásgeirsson forseti gaf Zalman Sashar, forseta Ísraels, að gjöf í heimsókn sinni til Ísraels 28. mars 1966 er nú til sölu á uppboðsvefnum Ebay. Þetta var söguleg heimsókn því Ásgeir var fyrsti erlendi þjóðhöfðinginn til að ávarpa ísraelska þingið, Knesset. Ísraelska skartgripa- og antíkverslunin Pasarel auglýsir bréfapressuna til sölu en hvergi er þess getið hvernig verslunin eignaðist gripinn. Lágmarksboð er 400 þúsund krónur. Í gær höfðu fjögur tilboð borist í bréfapressuna frá nafnlausum bjóðendum. Á uppboðsvefnum er bréfapressan sögð í góðu ástandi þótt aðeins sjái á henni. Hún er ferköntuð. Á hliðunum eru skjaldarmerki þjóðanna tveggja og nöfn forsetanna rituð. Ofan á henni er Davíðsstjarnan. Í Morgunblaðinu 29. mars 1966 er sagt frá heimsókn Ásgeirs til Ísraels bæði á forsíðu og inni í blaðinu. Um heimsóknina segir: „Forseti þess lands, sem elzta þjóðþing á í heimi hér, ávarpaði í dag eitt yngsta þing veraldar. Þessi atburður var skráður á spjöld sögunnar í Jerúsalem í dag er forseti Íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, steig í ræðustól þjóðþings Ísrael, Knesset, til þess að flytja kveðjur frá þjóð sinni og lýsa „frá hjarta íslenzku þjóðarinnar þeirri von að þjóð Ísrael megi njóta friðar og hagsældar um alla eilífð.“ Morgunblaðið fjallaði einnig lítillega um gjöfina, en um hana segir: „Forsetarnir skiptust á gjöfum. Forseti Íslands færði Ísraelsforseta bréfapressu að gjöf, íslenska silfursmíði, og er ofan á henni stjarna Davíðs úr gulli.“ Á uppboðsvefnum kemur ekki fram hvaða listamaður hefur gert bréfapressuna. Þess má samt geta að Ásgeir forseti gaf Sir Alec Douglas-Home, forsætisráðherra Bretlands, bréfapressu eftir Leif Kaldal gullsmið árið 1963. Örnólfur Thorsson, ritari forseta, segir að vegna þess hversu fátítt sé að gjafir forsetans séu seldar hafi hvorki nú né áður komið til álita að embættið keypti aftur gjafirnar. „Við þekkjum afar fá dæmi um að opinberar gjafir sem forsetar hafa færst öðrum þjóðhöfðingjum séu boðnar til kaups á opinberum markaði,“ segir Örnólfur. „Eftir að gjafir eru gefnar, hvort sem það eru þjóðhöfðingjar sem þær þiggja eða aðrir, er gjöfin, eðli máls samkvæmt, eign þess sem hana þiggur eða þess embættis sem hann gegnir í samræmi við þær reglur sem fylgt er hverju landi.“trausti@frettabladid.is
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Erlent Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Innlent Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Erlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Fleiri fréttir Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Sjá meira