Bæjarsjóður betur staddur með kísilverið Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. febrúar 2011 21:00 Árni Sigfússon bæjarstjóri. „
Það er full ástæða til að hafa jákvæðar væntingar út af þessum ágætu samningum," segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Samningar um kísilver í Helguvík voru undirritaðir í dag og má gera ráð fyrir að þeir hafi jákvæð áhrif á uppbyggingu atvinnulífs á Suðurnesjum. „Þetta er 17 milljarða fjárfestingaverkefni. Þetta þýðir miklar tekjur til sveitarfélagsins og íbúa á svæðinu á rekstratímanum og þannig eru þetta bæði mikilvægir samningar fyrir Helguvík sem hefur lagt í miklar fjárfestingar og er nú að fá þær til baka," segir Árni. Hann bendir á að samningar um kísilver muni skila auknum tekjum í bæjarsjóð, með auknum hafnargjöldum, það eru lóðargjöldum og fasteignagjöldum. „Þetta er allt veruleg búbót og svo eru líklegast 200 störf á framkvæmdatíma," segir Árni. Betra sé þó að telja störfin eftir að uppbygging hefst í byrjun maí. Árni segist telja að samningarnir í dag séu fyrstu vísbendingarnar um að stór verkefni á Reykjanesi séu að komast í gang. Það sé fagnaðarefni enda hafi kostað fjármagn að skapa aðstöðu fyrir þessi verkefni og svo hafi þurft að berjast mikið fyrir þeim. Árni vonast til að hægt sé að ganga lengra. „Auðvitað ætlumst við til að álversverkefnið gangi eftir. Það er mun stærra verkefni og hefur mun víðtækari áhrif. Það teygir sig alveg inn á höfuðborgarsvæðið. Við getum gert ráð fyrir að helmingur starfsmanna komi af höfuðborgarsvæðinu. Svo minni ég á gagnaverið og minni á einkasjúkrahús," segir Árni. Þetta séu nýjar greinar sem verið sé að skapa grundvöll fyrir. Uppbygging Keilis hafi líka skipt miklu máli.
Mest lesið Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent Fleiri fréttir Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Sjá meira