Vill sýningarsalina líka í Garðabæinn 3. janúar 2011 00:00 Húsið er 3.500 fermetrar að stærð en náttúruminjasafnið yrði 1.500 fermetra viðbygging samkvæmt frumdrögum. fréttablaðið/gva
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ, vill að nýtt náttúruminjasafn rísi við hlið nýrra höfuðstöðva Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ) í Urriðaholti. Nýtt glæsilegt húsnæði, sem var opnað formlega um miðjan desember, gjörbyltir starfsumhverfi vísindamanna. Þar með lauk 120 ára baráttu Náttúrufræðistofnunar fyrir því að geta boðið starfsfólki sínu upp á frambærilega rannsóknaraðstöðu. Þá var hægt í fyrsta skipti að bjóða vísindamönnum og nemendum í náttúrufræðum óheftan aðgang að vísindasöfnum stofnunarinnar til rannsókna. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Jóns Gunnars Ottóssonar, forstjóra NÍ, við vígslu hússins. Byltingin með nýju húsnæði felst ekki síst í því að umfangsmikil og verðmæt náttúrusýni Náttúrufræðistofnunar eru nú varðveitt við bestu skilyrði. Safnaskálar uppfylla strangar öryggiskröfur. Brunavarnir eru eins og best verður á kosið ásamt nákvæmu eftirliti með loftræstingu, hita og raka. Hingað til hafa vísindasöfnin verið geymd við bágbornar aðstæður. Þegar flæddi inn í geymslur í Súðavogi í febrúar var það í fimmta sinn á nokkrum árum sem NÍ varð fyrir skakkaföllum af því tagi. Gunnar styður þá hugmynd heils hugar að Náttúruminjasafn, sem er sjálfstæð stofnun, flytji líka í Urriðaholtið. „Það er búið að gera frumdrög að húsinu á þessum stað og ég tel að slík aðstaða myndi sóma sér vel við hlið Náttúrustofnunar." Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, lagði til á þingi fyrir rúmu ári að náttúruminjasafn fengi inni í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu og sagði það fráleitt að Íslendingar ættu ekkert slíkt safn. Undir orð hennar tók Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og sagði að búið væri að endurvekja hóp sem færi yfir húsnæðismálin í samvinnu ríkis og Reykjavíkurborgar. Náttúruminjasafn var lengi starfrækt við Hlemm. Með setningu laga um Náttúruminjasafn Íslands 2007 lauk hlutverki þess sem sýningarsafns á vegum Náttúrufræðistofnunar. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Lögregla klippti á plöturnar Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Innlent Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Innlent Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Fleiri fréttir Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út „Þessir helvítis útlendingar skilja ekki neitt“ Kjartan tekur við stöðu sveitarstjóra Þrír fluttir á bráðamóttökuna í þremur aðskildum málum Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Maður sem féll í Ölfusá fundinn Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Sjá meira