Nefnd þingmanna móti öryggisstefnu 12. apríl 2011 06:00 Ýmis hætta Meðal þess sem nefnd sem móta á þjóðaröryggisstefnu þarf að hafa í huga er hætta vegna mengunarslysa. Hér sést Goðafoss á strandstað við strendur Noregs nýlega.Nordicphotos/AFP
Nefnd tíu þingmanna allra flokka sem sæti eiga á Alþingi verður falið að móta þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland nái þingsályktunartillaga sem utanríkisráðherra hefur lagt fyrir Alþingi fram að ganga. Grundvöllur þessarar fyrstu þjóðaröryggisstefnu sem íslensk stjórnvöld láta vinna verður herleysi, að því er fram kemur í tillögunni. Vinnu við stefnuna á að vera lokið í júní á næsta ári. „Eitt af grundvallarhlutverkum stjórnvalda hverju sinni er að tryggja öryggi þjóðarinnar,“ segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Hann segir öryggisstefnu landsins hingað til hafa beinst gegn hernaðarógn, en það þurfi að breytast. Flestir séu nú sammála um að engin hernaðarógn steðji að okkar heimshluta, þótt annars konar ógn geti steðjað að. Hann nefnir til að mynda ógnir á borð við mengunarslys, farsóttir, skipulagða glæpastarfsemi, netglæpi og efnahagsþrengingar sem hafa áhrif þvert á landamæri ríkja. Þessar ógnir verði Ísland að taka alvarlega eins og önnur ríki. Össur segist leggja mikla áherslu á að þverpólitísk samstaða náist í þingmannanefndinni. Aðeins þannig megi tryggja að svo breið sátt verði um stefnu landsins í þessum málaflokki að breytingar verði ekki gerðar þótt ríkisstjórnarskipti verði. Þingmannanefndin á að fjalla um ýmis mál sem varða þjóðaröryggi, til dæmis aðild Íslands að varnarsamstarfi, samvinnu við önnur ríki, loftrýmisgæslu og ríkjasambönd um öryggi og varnir. Össur segir að í starfi nefndarinnar sé allt undir, þar á meðal aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu. „Ef það verður þverpólitísk niðurstaða um að það sé ekki rétt að vera í NATO hlýtur það að koma mjög alvarlega til álita, en ég á ekki von á að svo verði.“ Nefndin á jafnframt að skoða hvort rétt sé að koma upp sérstöku þjóðaröryggisráði eins og fjallað er um í áhættumatsskýrslu sem gefin var út árið 2009. Sé talin þörf á að koma upp slíku þjóðaröryggisráði þarf að fjalla um tengsl þess við almannavarna- og öryggisráð. Þegar nefndin hefur mótað þjóðaröryggisstefnu mun utanríkisráðherra leggja fram á Alþingi tillögu um þjóðaröryggisstefnu á grundvelli starfs nefndarinnar. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Tveir látnir eftir að tveir hófu skothríð Erlent „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent Lindsey Graham er látinn Erlent Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Innlent Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokað vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Sjá meira