Lögreglumenn fái auknar heimildir 14. febrúar 2011 17:39 Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Níu þingmenn þriggja stjórnmálaflokka vilja að lögreglan fái auknar heimildir sem eru sambærilegar við þær heimildir sem lögregla í öðrum norrænum ríkjum hefur til að rannsaka og grípa til gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Um svokallaðar forvirkar rannsóknarheimildir er að ræða. Samkvæmt þingsályktunartillögunni fengi lögreglan heimild til að safna upplýsingum um einstaklinga eða lögaðila þótt ekki væri fyrir rökstuddur grunur um tiltekið afbrot sem framið hefði verið. „Rannsókn fer fram áður en brot er framið og markmiðið er að koma í veg fyrir brot. Rannsóknin beinist að atferli sem talið er ógna almenningi, öryggi ríkisins og sjálfstæði þess. Lögreglan í Svíþjóð, Finnlandi, Noregi og Danmörku telur að þessar heimildir hafi verið ómetanlegar í baráttunni gegn m.a. skipulagðri glæpastarfsemi, jafnt innlendri sem erlendri, mansali, fíkniefnainnflutningi og hryðjuverkaógn, svo að hið helsta sé nefnt," segir í greinargerð með tillögunni. Fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögunnar er Siv Friðleifsdóttir. Meðflutningsmenn hennar eru Róbert Marshall, Birgir Ármannsson, Birkir Jón Jónsson, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Kristján L. Möller, Sigurður Ingi Jóhannsson og Höskuldur Þórhallsson. „Ljóst er að með þessum heimildum yrði samstarf íslensku lögreglunnar við lögreglulið annarra landa mun markvissara og líkur ykjust á að unnt yrði að hemja skipulagða glæpastarfsemi. Til að ná árangri gegn skipulagðri glæpastarfsemi, sem oft teygir anga sína þvert yfir landamæri, er nauðsynlegt að lögreglulið ríkjanna hafi sambærilegar heimildir. Afbrotamenn geta ferðast hindrunarlítið milli landa í Evrópu og mikil hætta er á að þeir leiti þangað sem viðbúnaður lögreglu er lakari og refsingar jafnvel vægari en í öðrum löndum álfunnar. Öryggi almennings og friður fyrir afbrotamönnum er mikilvægt velferðarmál sem vert er að undirstrika," segir í greingargerðinni. Að mati flutningsmanna er ábyrgðarlaust að veita lögreglunni ekki heimildir til forvirkra rannsókna. „Óásættanlegt er að fljóta sofandi að feigðarósi í þessum málum og grípa ekki til aðgerða fyrr en það er jafnvel orðið of seint með tilheyrandi alvarlegum afleiðingum fyrir öryggi almennings." Tillöguna er hægt að lesa hér.
Mest lesið Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Fleiri fréttir „Gamla góða Ísland, bara betra“ Gróður farinn að grænka fyrir norðan Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Sjá meira