Segir að útrunninn kjúklingur hafi farið á spítala og elliheimili 26. maí 2011 16:04 Andri Freyr Viðarsson útvarpmaður á Rás 2.
Andri Freyr Viðarsson, sem er annar tveggja þáttastjórnenda útvarpsþáttarins Virkir morgnar á Rás 2, sagði í morgun frá því þegar hann vann hjá ónefndu kjúklingafyrirtæki hér á landi á tíunda áratug síðustu aldar. Hann hafi meðal annars unnið við það að meta það hvort að útrunninn kjúklingur gæti farið í marineringu og þaðan á spítala og elliheimili. Í þættinum segir Andri frá því að hann hafi verið ungur þegar hann vann hjá fyrirtækinu og hafi því verið „strákurinn" í vinnunni. Hann hafi oft verið látinn í verkin sem aðrir nenntu ekki að sinna, til dæmis að þrífa bala og annað slíkt. Á mánudagmorgnum segir Andri að hann hafi verið látinn í það að þefa af útrunnum kjúklingi sem kom úr verslunum eftir helgina. Hann hafi rifið upp pakningarnar og verið með tvo bala fyrir framan sig. Í annan balann hafi hann látið kjúkling sem lyktaði „viðbjóðslega" og honum hafi verið hent í ruslið. Í hinn balann hafi farið kjúklingur sem lyktað ekki eins illa og ekki verið „svo slæmur." Þegar hann hafi verið kominn með tugi kílóa af kjúkling í balann sem var „allt í lagi" hafi sá kjúklingur verið baðaður upp úr marineringu. Það hafi oftast verið TexMex-marinering, segir hann. Kjúklingnum hafi því næst verið pakkað saman og sendur á elliheimili og á sjúkrahús. Guðrún Dís Emilsdóttir, hinn þáttastjórnandinn, er hneyksluð á þessum aðferðum sem viðgengust hjá fyrirtækinu. „Ég hugsaði að ef fólk fær í magann þá er það allavega á spítala," sagði Andri Freyr í þættinum í morgun. Hann undirstrikar að þetta hafi verið vinnubrögðin á þeim tíma, það er að segja einhvern tíman á tíunda áratuginum, en hann viti ekki hvernig þetta er í dag. „Ég vona að aðferðirnar eru aðrar í dag," sagði Andri Freyr. Hægt er að hlusta á þáttinn á vef Ríkisútvarpsins hér og kjúklingaumræðan hefst þegar einn og hálfur klukkutími er búinn af þættinum.
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Erlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira