Brátt byrjað að afferma Goðafoss Jón Hákon Halldórsson skrifar 19. febrúar 2011 14:19 Goðafoss strandaði við Frederiksstad.
Byrjað verður að afferma Goðafoss á næstu tveimur klukkutímum, samkvæmt upplýsingum frá Eimskipum. Unnið verður að því að afferma eins lengi og birtuskilyrði leyfa, segir Ólafur William Hand, upplýsingafulltrúi félagsins, í samtali við Vísi. „Björgunarfélag hefur nú metið aðstæður og lagt fram nákvæma björgunaráætlun fyrir norsku strandgæsluna og sérfræðinga Eimskips sem unnið verður eftir," segir Ólafur. „Spáð er áframhaldandi logni á strandsvæðinu sem mun auðvelda björgunaraðgerðir en verkefnið krefst nákvæmni og þolinmæði og ekki verður flanað að neinu," segir Ólafur jafnframt í yfirlýsingu frá Eimskip. Ólafur segir í yfirlýsingu til fjölmiðla að umhverfisáhrifin af völdum olíulekans virðist ætla að verða mun minni en upphaflega hafi verið óttast og tekist hafi að hefta útbreiðslu olíunnar, en norska strandgæslan hafi yfirumsjón með aðgerðum sem snúi að verndun náttúrunnar. Ekki séu skemmdir á farmi en um 430 gámar séu um borð í skipinu. Að sögn Ólafs var neyðaráætlun Eimskipafélags Íslands virkjuð og óhappanefnd kölluð til um leið og fregnir bárust af því að Goðafoss hefði strandað skammt fyrir utan Fredriksstad í Noregi. „Strax var haft samband við tryggingafélög og aðra hlutaðeigandi aðila og leitað til færustu björgunarfélaga ytra á sviði sjóslysa. Þá fór hópur starfsmanna Eimskips hér á landi til Noregs, í því skyni að vera áhöfninni á Goðafossi til halds og trausts. Forstjóri félagsins, Gylfi Sigfússon, hélt einnig þegar í stað á strandstað þar sem hann stýrir starfi óhappanefndar Eimskips á svæðinu og snemma í morgun fór hann um borð í Goðafoss, ræddi við skipstjóra og áhöfn og kynnti sér aðstæður," segir Ólafur.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Fleiri fréttir Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“