Í faðmi fræga fólksins 19. febrúar 2011 15:00 Hera stýrir Eddunni, sem verður í beinni á Stöð 2 og Vísi í kvöld.
Enginn vinningshafanna veit fyrirfram hver vinnur því það á að koma á óvart og þannig vil ég líka njóta þess," segir Hera Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Eddunnar sem verður sýnd í beinni útsendingu frá Íslensku óperunni á Stöð 2 og hér á Vísi í kvöld. "Ég hlakka til og góð tilfinning að sjá hátíðina verða að veruleika eftir langan undirbúning," segir Hera sem reiknar með fullkomnu spennufalli þegar hátíðahöldunum lýkur í kvöld, en hún hefur ekki enn valið sér kjól fyrir kvöldið. "Allir munu mæta í sínu fínasta pússi svo ég þarf að finna eitthvað látlaust og flott, en þó ekki svo fínt að ég skyggi á stjörnurnar, sem ég gæti ósköp auðveldlega, en þetta er jú þeirra dagur," segir hún hláturmild og hress. Að verðlaunaafhendingu lokinni flyst samkoman yfir á Sólon þar sem fræga fólkið gleðst áfram. "Þar verða margir sem fagna og eflaust einhverjir vonsviknir, en þetta er fyrst og fremst uppskeruhátíð kvikmyndagerðarfólks og þeirra stund til að fagna því sem vel var gert á síðasta ári," segir Hera sem mörgum finnst trúlega öfundsverð að lenda mitt í partíhringiðu fræga fólksins. "Þetta er auðvitað skemmtilegasta fólk landsins og skapandi eftir því, en því miður er gleðskapurinn lokaður því fólkið þarf að fagna í friði," útskýrir Hera sem á morgun planar að liggja með tærnar upp í loft og hlaða batteríin heima. "Mér finnst voða gott að borða morgunmat yfir dagblöðunum í rúminu og leyfa tímanum að hafa sinn gang á sunnudagsmorgnum. Það er svo mikilvægt að kunna að slaka á heima og rembast ekki um of við stífa dagskrá í helgarfríinu." thordis@frettabladid.is
Tengdar fréttir Edduverðlaunin 2011 - Brim með flestar tilnefningar Kvikmyndin Brim eftir Vesturport og Zik Zak kvikmyndir fær flestar tilnefningar ársins til Edduverðlaunanna. Myndin er tilnefnd sem bíómynd ársins, Árni Ólafur Ásgeirsson sem leikstjóri ársins og hópurinn fyrir handrit ársins. Næst á eftir Brimi kemur kvikmyndin Órói með tíu tilefningar. 3. febrúar 2011 14:41 Edduverðlaunin - tilnefningar í heild sinni Kvikmyndirnar Brim, Órói og The Good Heart eru tilnefndar til flestra verðlauna á Edduhátíðinni. Vísir birtir listann yfir tilnefningar í heild sinni. 3. febrúar 2011 14:55 Mest lesið Konur að fæða börn á bakinu ... fyrir karlmenn Áskorun „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Lífið Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Tónlist Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Menning Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Lífið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Lífið Furðubandið sem tryllti netið Lífið Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Tíska og hönnun Fleiri fréttir Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 Sjá meira
Edduverðlaunin 2011 - Brim með flestar tilnefningar Kvikmyndin Brim eftir Vesturport og Zik Zak kvikmyndir fær flestar tilnefningar ársins til Edduverðlaunanna. Myndin er tilnefnd sem bíómynd ársins, Árni Ólafur Ásgeirsson sem leikstjóri ársins og hópurinn fyrir handrit ársins. Næst á eftir Brimi kemur kvikmyndin Órói með tíu tilefningar. 3. febrúar 2011 14:41
Edduverðlaunin - tilnefningar í heild sinni Kvikmyndirnar Brim, Órói og The Good Heart eru tilnefndar til flestra verðlauna á Edduhátíðinni. Vísir birtir listann yfir tilnefningar í heild sinni. 3. febrúar 2011 14:55