Fyrsta fimm stjörnu hótelið á Íslandi 19. júlí 2011 19:16
Líkur eru á að fyrsta fimm stjörnu hótel landsins muni rísa vestan við tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu árið 2015. Sex tilboð hafa borist í byggingu þess en tilboðsfresturinn rann út í gær. Fjöldi innlendra og erlendra fjárfesta sýndu útboðinu mikinn áhuga en að lokum bárust formleg tilboð frá þremur íslenskum og þremur erlendum aðilum. Í útboðsgögnunum fyrir lóðina er kveðið á um að bygging hótelsins verði í samvinnu við alþjóðlega hótelkeðju og er gert ráð fyrir að minnsta kosti 250 herbergjum. Til samanburðar má nefna að Grand Hótel er 314 herbergja og á Hótel Sögu eru herbergin 209 talsins. Nýja hótelið verður á stærð við tónlistar- og ráðstefnuhúsið sjálft, en það getur að hámarki orðið 28 þúsund fermetrar ofan jarðar, auk tveggja þúsund fermetra bílakjallara. Krafa er um að hótelið verði fjögurra til fimm stjörnu, en það þykja fréttir þar sem ekkert fimm stjörnuhótel er að finna á Íslandi enn sem komið er. Situs hf., sem á lóðina, fer nú yfir tilboðin og verður efnt til nánari viðræðna við þá tilboðsgjafa sem þykja vænlegir. Endanleg niðurstaða um hverjir fá byggingarréttinn mun liggja fyrir innan fjögurra til sex vikna. Markmið fyrirtækisins er að hótelrekstur verði hafinn í síðasta lagið vorið 2015. Fyrirhugað hótel á að rísa vestan við Hörpu.
Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Innlent Fleiri fréttir Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Sjá meira