Varðstjóri ákærður fyrir að fara offari í starfi 31. maí 2011 13:06 Mynd úr safni og tengist fréttinni ekki beint
Varðstjóri hjá lögreglunni á Selfossi hefur verið ákærður fyrir brot í starfi þegar hann lét handtaka ungan ölvaðan pilt og skilja hann eftir á víðavangi. Samkvæmt upplýsingum frá ríkislögreglustjóra er umræddur varðstjóri enn við störf. Pressan greinir frá því að varðstjórinn er ákærður fyrir að hafa farið offari í starfi sínu í júní á síðasta ári þegar hann fyrirskipaði öðrum lögreglumönnum að aka með ölvaðan pilt af mótssvæði í Galtalæk. Drengurinn hafði þá verið handtekinn. Lögreglumenn óku með drenginn um fjóra kílómetra í burtu frá Galtalæk og hann þar skilinn eftir.Samkvæmt Pressunni leitaði drengurinn þá eftir aðstoð í nærliggjandi sumarbústað. Þeir sem í sumarbústaðnum voru hringdu á lögregluna sem aftur handtólk drenginn og skildu lögreglumenn hann aftur eftir á víðavangi.Lögreglumaður dæmdur í fyrra Í nóvember á síðasta ári var lögreglumaður í Reykjavík dæmdur í Hæstarétti fyrir brot í opinberu starfi með því að hafa í janúar 2009 farið offari við framkvæmd lögreglustarfans og ekki gætt lögmætra aðferða. Sá lögreglumaður var þá stjórnandi lögregluaðgerðar og skipaði öðrum lögreglumanni að fara með pilt, sem hafði verið handtekinn vegna ölvunarláta í miðbæ Reykjavíkur, út á Granda þar sem hann var skilinn eftir. Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að það sé mælt fyrir um að handtekinn maður sé færður á lögreglustöð eða annan stað þar sem lögregla hefur aðstöðu. Eigi þetta við ef honum sé ekki þegar sleppt. Þeim dæmda lögreglumanni var aldrei vikið úr starfi á meðan á rannsókn málsins stóð. Í dag fékkst staðfest hjá ríkislögreglustjóra að umræddur lögreglumaður er enn við störf.Tengdar fréttir:Dæmdur lögreglumaður enn við störfDæmdum lögregluþjóni verður ekki vikið úr starfiLögreglumaður dæmdur í Hæstarétti
Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Fleiri fréttir Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Lögðu hald á skotvopn og maður í gæsluvarðhald Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Jarðskjálfti við Bárðarbungu í nótt „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns Sjá meira