Skólarnir fá 200 milljónir Óli Kristján Ármannsson skrifar 18. febrúar 2011 11:00
Borgarstjóri lagði á fundi borgarráðs í gær fram tillögu Besta flokksins og Samfylkingarinnar um að auka fjárheimildir menntasviðs á haustönn 2011 um 200 milljónir króna. Tillagan var samþykkt og vísað til borgarstjórnar. Í tillögunni er lagt til að 135 milljónum króna verði bætt við úthlutað kennslumagn, 20 milljónum verði bætt við vegna gæslu nemenda í frímínútum og í matartíma og 45 milljónum verði bætt við úthlutað fjármagn til forfallakennslu nemenda. Útgjöldunum á að hluta að mæta með hækkun útsvars í 14,48 prósent, frá og með 1. júlí næstkomandi. Gert er ráð fyrir að hækkunin skili borginni 115 milljónum króna í auknar tekjur. Forsvarsmenn grunnskóla kynntu í janúar fyrirhugaðan niðurskurð hjá menntaráði og hafa skólastjórnendur í þessum mánuði unnið að nánari útfærslu niðurskurðarins, en úr honum verður væntanlega dregið í samræmi við auknar fjárheimildir. „Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011 var sá fyrirvari gerður á fjárhagsáætlun Menntasviðs að horft yrði til viðræðna sveitarfélaganna og menntamálaráðherra vegna tímabundinna breytinga á grunnskólalögum til að gera sveitarfélögum betur kleift að standa vörð um gæði kennslunnar. Ekki er útlit fyrir að sú niðurstaða náist. Strax í byrjun árs voru rekstraráætlanir skóla grannskoðaðar og í ljós kom að uppsafnaður vandi vegna hagræðingar síðastliðinna ára, sérstaklega í gæslu og forföllum, var ekki ásættanlegur,“ segir í greinargerð með tillögunni. Félög foreldra grunnskólabarna í borginni hafa mótmælt fyrirhuguðum niðurskurði harðlega síðustu daga og vikur. Í gær var boðað til sérstaks samstöðufundar og mótmæla við Ráðhús Reykjavíkur, en mótmælunum lauk með opnum fundi með Jóni Gnarr borgarstjóra og Oddnýju Sturludóttur, formanni menntaráðs borgarinnar. Fulltrúar foreldra hafa gagnrýnt að ekki liggi fyrir með hvaða hætti eigi að hagræða í skóla og frístundastarfi barna í Reykjavík og benda á að skólastjórnendur hafi engar upplýsingar fengið um hvað aukin fjárveiting þýði í raun. Töluverður hiti hefur verið í mótmælum foreldra. Þannig hefur Guðrún Valdimarsdóttir, formaður SAMFOK, sagt erfitt að skylmast um tölur við fræðslustjóra eða aðra fulltrúa borgarinnar þegar þeir velji að ræða við foreldra „í þoku blekkingar og leyndarhjúps“. Ragnar Þorsteinsson fræðslustjóri hefur hins vegar sagt að misskilnings hafi gætt í tölum sem slegið hafi verið fram um 800 milljóna króna niðurskurð í rekstri grunnskólanna. Hann bendir á að í fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir þetta ár hafi verið gert ráð fyrir 290 milljóna króna niðurskurði í grunnskólunum. Með aukinni fjárveitingu standi nú eftir 92 milljóna króna niðurskurður sem skólastjórnendur fáist við með hagræðingu.
Mest lesið Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Innlent Fleiri fréttir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Sjá meira