Fékk að leiða Pedro Rodríguez inn á Wembley 29. maí 2011 18:25 Steinar Óli á Wembley „
Skemmtilegast af öllu var að fá að ganga út á grasið," segir Steinar Óli Sigfússon sjö ára gamall piltur sem fékk að leiða Pedro Rodríguez leikmann Barcelona út á völlinn í úrslitaviðureign Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gær. Steinar Óli er í 1. bekk í Varmahlíðaskóla og var hlutskarpastur í keppni sem Kreditkort efndi nýverið til og var því í hópi evrópskra barna sem fengu að fylgja leikmönnum inn á Wembley í gær. Um 80 þúsund áhorfendur fönguðu þegar leikmennirnir gengu inn á völlinn. Manchester United og Barcelona öttu kappi í gær og skoraði Pedro Rodríguez fyrsta mark Barcelona í leiknum en leikurinn endaði með 3-1 sigri. Faðir Steinars Óla, Sigfús Ingi Sigfússon, fór á úrslitaleikinn með Steinari Óla og voru þeir feðgar sammála um að reynslan öll hefði verið fullkomin, fyrir utan tap Manchester manna. „Það fyrsta sem hann sagði við mig eftir að hafa fylgt Rodríguez út á völl var „Ég snerti Rooney!" en leikmennirnir gáfu öllum krökkunum fimmu," sagði Sigfús Ingi sem var afar ánægður með ferðina. „Þetta er ein stærsta viðureign ársins og erum við afar glöð fyrir hönd Steinars Óla," segir Sigfríð Eik Arnardóttir, forstöðumaður Þjónustu- og markaðssviðs hjá Kreditkorti. „Viðskiptavinum okkar með MasterCard kort gafst færi á að skrá börn til leiks og við völdum síðan eitt barn til að fara út ásamt foreldri eða tilsjónarmanni, en um 1.000 börn voru skráð í keppnina. Þetta er ógleymanleg stund fyrir ungt knattspyrnufólk og því mjög spennandi að geta boðið viðskiptavinum okkar að taka þátt í svona leik," segir Sigfríð. Kreditkort og MasterCard, sem er aðalstyrktaraðili UEFA Champions League, hafa tvisvar áður boðið krökkum og fylgdarfólki þeirra á knattspyrnuleiki erlendis, en aldrei á sjálfan úrslitaleik Meistarakeppninnar.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Verkalýðsfélögin séu úrelt og þau hefði mátt leggja niður Innlent Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Innlent Fleiri fréttir Verkalýðsfélögin séu úrelt og þau hefði mátt leggja niður Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Sjá meira