Innlent

Sölvi Tryggva skrifar sögu Annþórs

Sölvi Tryggvason hyggst skrifa sögu Annþórs Kristjáns Karlssonar, sem um árabil hefur verið einn alræmdasti handrukkari landsins. Sölvi kveðst gera sér fyllilega grein fyrir því að slík bók verði alltaf umdeild, eðli málsins samkvæmt.
Sölvi Tryggvason hyggst skrifa sögu Annþórs Kristjáns Karlssonar, sem um árabil hefur verið einn alræmdasti handrukkari landsins. Sölvi kveðst gera sér fyllilega grein fyrir því að slík bók verði alltaf umdeild, eðli málsins samkvæmt.
„Það er fyrst og fremst forvitni sem rekur mig af stað," segir sjónvarpsmaðurinn Sölvi Tryggvason. Hann hefur skrifað undir samning við útgáfufélagið Senu um að skrifa ævisögu Annþórs Kristjáns Karlssonar, eins þekktasta handrukkara í undirheimasögu Íslands.

Að sögn Sölva leitaði Annþór fyrst til hans fyrir tveimur árum og hann viðurkennir að þá hafi hann verið á báðum áttum. „Ég hitti hann nokkrum sinnum til að ganga úr skugga um að hann væri ekki lengur í afbrotum, að hann væri edrú og væri ekki á höttunum eftir réttlætingu. Ég leitaði líka til Margrétar Frímannsdóttur, fangelsisstjóra á Litla-Hrauni, og spurði hvernig hún sæi hann og hún staðfesti að hann væri í góðum málum, hann hefði farið í meðferð og klárað tólf spora kerfið," segir Sölvi og bætir því við að Annþór sjálfur hafi sagt að nákvæmlega ekkert gæti réttlætt það sem hann hefði gert. „Vonandi verður bókin bara ný sýn inn í fíkniefnaheiminn."

Sölvi gerir sér fullkomlega grein fyrir því að þessi skrif eigi eftir að verða umdeild en mikil umræða hefur verið í gangi um hvort fjölmiðlar hefji þekkta glæpamenn óþarflega upp til skýjanna og geri þá aðlaðandi í augum ungs fólks. Sölvi segist skilja þessa umræðu og telur að hún eigi fyllilega rétt á sér og að fólk eigi eftir að telja þessa bók algjörlega óþarfa. Fólk geti þá einfaldlega sleppt því að kaupa bókina. „Annþór er að reyna að fóta sig í samfélaginu eftir nokkurra ára fangelsisvist. Hins vegar er það á engan hátt nein hugmynd hjá mér að gera lítið úr því sem hann hefur gert heldur ætla ég að reyna svara því hvernig menn leiðast út í þennan heim og fá sýn á þessar hliðar íslensks samfélags sem eru svo sannarlega til staðar."- fgg




Fleiri fréttir

Sjá meira


×