Langflest börn fædd árið 2009 með pláss 10. september 2011 11:00 Flest börn úr árgangi 2010 munu ekki fá pláss fyrr en á næsta ári. fréttablaðið/hari
Öll börn fædd á árinu 2009 hafa fengið boð um leikskólapláss í Reykjavíkurborg á þessu ári. Þó til sé fermetrarými í sumum leikskólum til að taka við börnum þá hafa stöðugildi í leikskólum í sumum hverfum verið flutt til svo hægt sé að koma 2009 árganginum fyrir. „Á árunum 2009 og 2010 fjölgaði fæddum börnum í borginni mjög – það varð sannkölluð barnasprengja,“ segir Sigrún Björnsdóttir, upplýsingafulltrúi leikskólasviðs. „Til að mæta því án þess að kosta til miklum fjármunum í nýja leikskóla hefur meðal annars verið komið upp viðbótarhúsnæði við nokkra leikskóla í borginni. Þannig hafa verið búin til á þriðja hundrað ný leikskólapláss.“ Miðað er við að þau börn sem verða tveggja ára á árinu fái leikskólapláss. Oftast eru börn tekin inn að loknu sumarleyfi þegar elsti leikskólaárgangurinn fer í grunnskóla. Þannig að sum börn geta þá verið á bilinu nítján mánaða til tveggja ára. Nokkuð hefur verið um að börn fædd árið 2010 sem hafa náð átján mánaða aldri hafi ekki enn fengið boð um pláss. Sigrún útskýrir að börn fædd það ár verði flest hver ekki tveggja ára fyrr en á næsta ári. „Eins og staðan er nú munu þau öll fá úthlutað leikskólaplássi á næsta ári. Þá er gert ráð fyrir sjötíu nýjum leikskólaplássum vorið 2012,“ segir hún. Rúmlega 200 leikskólapláss í sjálfstætt starfandi leikskólum fyrir börn fædd 2009 eru niðurgreidd af borginni. Um 1.400 börn hófu nám í 1. bekk í haust og til samanburðar má geta þess að 1.740 börn eru fædd í Reykjavík árið 2009. Af þeim eru 1.700 börn nú þegar í leikskólavistun eða hafa fengið boð um leikskólapláss. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Erlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Fleiri fréttir Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Fjöldi lögreglubíla veitti Hopp-deilibíl eftirför Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Sjá meira