Tæpur helmingur vill Hönnu Birnu 10. september 2011 18:30
Tæpur helmingur landsmanna vill sjá Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í formannsstóli Sjálfstæðisflokksins samkvæmt könnun Capacent Gallups. Núverandi formaður nýtur margfalt minni stuðnings en flokksystir hans, bæði meðal almennra kjósenda og Sjálfstæðismanna. Samkvæmt könnuninni treysta 40,2% landsmanna Hönnu Birnu Kristjánsdóttur best til að leiða Sjálfstæðisflokkinn, þrátt fyrir að hún hafi ekki gefið kost á sér til formanns flokksins. Bjarni Benediktsson, núverandi formaður sem sækist eftir endurkjöri á landsfundi í nóvember, nýtur 11,1% stuðnings og á eftir honum með 7,6% kemur Kristján Þór Júlíusson. 5,5% vilja sjá Ólöfu Nordal í formannssætinu og 1,9% Guðlaug Þór Þórðarson. Athygli vekur að rúm 5% kjósa að sjá aðra einstaklinga gegna formennskunni og tæp 30% treysta engum innan flokksins til þess. Þegar litið er til kjósenda Sjálfstæðisflokksins sést að yfir helmingur treystir Hönnu Birnu best fyrir formannssætinu, eða 51,4%. Það er meiri stuðningur en allir aðrir fulltrúar flokksins, sem könnunin nær yfir, fá til samans, þar á meðal formaðurinn sem nýtur einungis stuðnings tæplega fjórðungs kjósenda sinna, eða 24,3%. Þessi staða sem nú er komin upp innan Sjálfstæðisflokksins þykir því fremur óvanaleg. Úrtak könnunarinnar náði til 1320 einstaklinga og var svarhlutfallið rúmlega 60%, en tæplega 80% svarenda tóku afstöðu. Það var Capacent Gallup sem sá um framkvæmdina að ósk stuðningsmanna Hönnu Birnu, en könnunin fór fram á netinu dagana 6. til 14. júlí og hefur hún verið kynnt nokkrum af forystumönnum flokksins. Það er athyglisvert að könnunin var framkvæmd fyrir tveimur mánuðum, en þeir sem hana gerðu ákváðu að leka henni ekki til fjölmiðla fyrr en nú. Hvað hefur breyst á þessum tíma? Sjálfstæðisflokkurinn hefur sótt í sig veðrið að undanförnu en samkvæmt nýrri könnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins myndi rúmlega helmingur landsmanna kjósa flokkinn ef gengið yrði til kosninga nú. Í ljósi góðs stuðnings almennra kjósenda við Hönnu Birnu hljóta sjálfstæðismenn nú að velta fyrir sér hvort að hún geti hugsanlega styrkt stöðu flokksins enn frekar með formannsframboði.
Mest lesið Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira