Japanska og sjúkraþjálfun í Háskóla unga fólksins 6. júní 2011 10:57 Háskóli unga fólksins hefur verið starfræktur í júnímánuði allt frá árinu 2004. Þessi mynd er tekin í fyrra Mynd GVA
Um 300 krakkar á aldrinum 12-16 ára settust á skólabekk í Háskóla Íslands í morgun þegar Háskóli unga fólksins var settur í áttunda sinn. Skólinn stendur yfir dagana 6. - 10. júní og er nemendum boðið upp á fjölbreytt námskeið í greinum sem kenndar eru við Háskóla Íslands. Guðrún Bachmann, skólastjóri Háskóla unga fólksins, setti skólann að viðstöddum fríðum hópi nemenda og sagði hún Háskóla unga fólksins vera árvissan sumarboða í starfi Háskóla Íslands og alltaf mikil eftirvænting í lofti á þeim tíma. Að setningu lokinni hófst kennsla en hún fer fram víða á háskólasvæðinu. Nemendur gátu valið á milli 36 námskeiða og hafa þeir sjálfir raðað saman sinni eigin stundatöflu. Meðal námskeiða sem kennd eru í skólanum eru stjörnufræði, sjúkraþjálfun, japanska, sálfræði, franska, frumkvöðlafræði, lögfræði og jarðfræði. Kennsla fer fram á milli klukkan 9 og 15 alla dagana en miðvikudaginn 8. júní er þemadagur þar sem nemendur hafa valið sér eina námsgrein fyrir allan daginn. Háskóla unga fólksins lýkur föstudaginn 10. júní með veglegri lokahátíð á Háskólatorgi. Háskóli unga fólksins hefur verið starfræktur í júnímánuði allt frá árinu 2004 og óhætt er að segja að það lifni yfir háskólasvæðinu þegar fróðleiksfúsir og fjörugir krakkar leggja það undir sig. Námskeiðin sem hafa verið kennd við Háskóla unga fólksins skipta mörgum tugum og brautskráðir nemendur skólans eru hátt í tvö þúsund. Skólinn er með óvenju viðamiklu sniði í ár þar sem Háskóli Íslands fagnar aldarafmæli á árinu. Þannig hefur Háskóli unga fólksins farið um landið með Háskólalestinni svokölluðu síðustu vikur og heimsótt fimm bæjarfélög. Þar hefur grunnskólanemum verið boðið upp á valin námskeið úr skólanum og bæjarbúum á hverjum stað boðið í vísindaveislu. Háskólalestin heldur áfram ferð sinni í ágúst.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Fleiri fréttir Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjá meira