Rocky Horror slær aðsóknarmet 2. mars 2011 05:00
Leikfélagið setur nýtt met á föstudaginn þegar áhorfendafjöldinn fer í fyrsta skipti yfir fimmtán þúsund manns. Þá verður haldin lokasýning söngleiksins Rocky Horror sem hefur verið sýndur í menningarhúsinu Hofi frá því í fyrra við góðar undirtektir. Hingað til hefur Fló á skinni frá leikárinu 2007 til 2008 verið vinsælasta sýning leikfélagsins til þessa en það breytist á föstudaginn. „Þetta er alveg æðislegt," segir María Sigurðardóttir, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar. Aðspurð segist hún ekki hafa brugðist við þessari frábæru aðsókn. „Við erum reyndar í stærra húsi núna en nei, við vorum ekki örugg um það. Þetta er mjög ánægjulegt fyrir okkur." Stutt er síðan haldin var áhorfendasýning á Rocky Horror sem gekk eins og í sögu. Dagblöðum, ljósum og textablöðum var dreift um salinn og tóku áhorfendur virkan þátt í því sem fram fór. „Fólkið þurfti að setja dagblað yfir hausinn í ákveðnu lagi og kveikja á ljósi í öðru lagi. Það var mikil þátttaka og mikið sungið," segir María. Á meðal gesta voru fyrrverandi nemendur MH sem frumsýndu Rocky Horror fyrir tuttugu árum, þar á meðal Páll Óskar Hjálmtýsson. Eftir sýninguna kíkti hópurinn baksviðs og fór vel á með þeim og núverandi leikaraliðinu, sem samanstendur af Magnúsi Jónssyni, Eyþóri Inga Gunnlaugssyni, Bryndísi Ásmundsdóttur og Andreu Gylfadóttur meðal annarra.- fb Hér fyrir ofan má sjá lag úr sýningunni, Tíðhnit, sem var flutt í Loga í beinni á Stöð 2 á dögunum.
Mest lesið Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Tónlist Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Geislasverð Loga Geimgengils seldist á 470 milljónir Bíó og sjónvarp „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Lífið Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Fleiri fréttir Franskt draumabrúðkaup eins og beint úr ævintýri Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Sjá meira