Öryggistilfinning Dalamanna dofnar 2. mars 2011 05:00 Búðardalur Áfram verður lögregluvarðstöð í Búðardal en hún er mannlaus því eini lögregluþjóninn er í veikindaleyfi.Fréttablaðið/Pjetur „
Fólk upplifir nú mikið öryggisleysi eftir að hér hefur verið lögreglubíll á staðnum frá árinu 1966,“ segir Baldvin Guðmundsson, íbúi í Búðardal, en þaðan hvarf eini lögreglubíllinn í gær til Borgarness vegna hagræðingar. Um miðjan febrúar voru Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra afhentir undirskriftalistar með tæplega 1.400 nöfnum þar sem áformunum var mótmælt. Einn forvígismanna söfnunarinnar, Sigurður Sigurbjörnsson, sagði að bágur fjárhagur sýslumannsembættisins í Borgarnesi mætti „ekki bitna á almennum mannréttindum og öryggistilfinningu Dalamanna og nærsveitunga“. Fulltrúar sveitarstjórnarinnar funduðu einnig með ráðherranum. Þeir sögðu að á fundinum hefði komið fram að engar ákvarðanir hefðu enn verið teknar um málið. Sjónarmið Dalabyggðar yrðu skoðuð áður en lengra yrði haldið. „Ögmundur virðist bara hafa sett upp eitthvert pókerfés á þessum fundi og nú er lögreglubílinn farinn til Borgarness,“ segir Baldvin, sem kveðst áhyggjufullur fyrir hönd byggðarlagsins, ekki í síst í ljósi vaxandi umferðar í kjölfar opnunar heilsársvegar norður um Arnkötludal. Hann kveðst tala af reynslu um aðstæður á svæðinu enda hafi hann starfað sem sjúkraflutningamaður á árum áður. „Þeir benda á að það séu áttatíu kílómetrar úr Borgarnesi í Búðardal en ef þarf að fara út á Skarðsströnd þá eru það orðnir 150 kílómetrar. Það er einfaldlega allt of langt.“ - gar
Mest lesið Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada Erlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Fleiri fréttir Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Samfylkingarmönnum í Reykjavík fjölgað um 72 prósent Sjá meira