Heimta fé af BVS í kjölfar skýrslunnar 2. mars 2011 10:00 Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu
Fyrrverandi eigandi meðferðarheimilis sem rekið var á grundvelli þjónustusamnings við Barnaverndarstofu (BVS) hefur sent BVS formlegt erindi í kjölfar þess að Ríkisendurskoðun gaf út skýrslu í síðustu viku um rekstur slíkra heimila. Hann telur að með vísan til þess sem fram komi í skýrslunni sé ljóst að hann hafi verið hlunnfarinn við uppgjör á samningi sínum og krefst þess að honum verði bætt það sem upp á vanti. Þetta staðfestir Bragi Guðbrandsson, forstjóri BVS. „Við erum þegar búin að fá eitt erindi sem varðar starfslok þar sem óskað er eftir fyrirgreiðslu á grundvelli jafnræðissjónarmiða með vísan til skýrslunnar," segir hann. Í skýrslunni gagnrýndi Ríkisendurskoðun svokallaðar „sanngirnisbætur" til þriggja heimila, Torfastaða, Árbótar og Götusmiðjunnar. Harðasta gagnrýnin var á greiðsluna til Árbótar, sem ekki var talin nein lagaskylda eða málefnalegar röksemdir fyrir, en hinar voru þó sagðar orka verulega tvímælis. Alls hefur þjónustusamningum fjórtán sinnum verið rift við rekstraraðila áður en samningstíminn rann út, stundum að frumkvæði þeirra sjálfra, en einungis í framangreind þrjú skipti var samið um uppgjörsgreiðslur. Bragi segir að í erindinu sé vísað til fordæmisins sem skapast hafi af tilteknum þætti Torfastaðamálsins en hann vill ekki gefa upp hvaða rekstraraðili það er sem sendi erindið. Þá segist hann ekki vita um hversu miklar upphæðir geti verið að ræða, enda séu þær ekki nefndar í erindinu og töluverð vinna gæti verið að reikna þær út. Bragi segist vita að annað svipað erindi sé á leiðinni, þar sem rekstraraðili telur sig hafa fengið lægri greiðslur en hann átti heimtingu á ef marka megi skýrsluna. „Síðan eru það fyrirspurnir sem ekki hafa leitt til erindis enn sem komið er – innhringingar og menn að skoða sína stöðu og ráðfæra sig við lögmenn," bætir hann við. Ómögulegt sé að segja til um hvort þær verði að formlegum erindum. „Menn sem hafa áður verið í samstarfi við okkur eru ósáttir. Þeir segja að ef þeir hefðu bara haft vit á að notfæra sér tengsl við stjórnmálamenn til að knýja fram betri úrlausn þá blasi við að þeir hefðu fengið meira í sinn hlut," segir Bragi. - sh
Mest lesið Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Fleiri fréttir Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Sjá meira