Töldu reykinn frá Funa ekki heilsuspillandi 2. mars 2011 22:00 Ekkert af innkölluðu díoxínmenguðu kjöti skilaði sér til baka enda hafði allt verið selt neytendum. Talið er útilokað að neysla þess hafi haft heilsuspillandi áhrif. mynd/halldór sveinbjörnsson
Bæjaryfirvöld á Ísafirði grunaði ekki að mengun frá sorpbrennslunni Funa kynni að vera heilsuspillandi fyrir íbúa á svæðinu og til þess má leita skýringa á því af hverju málið var ekki kynnt sérstaklega fyrir íbúum á svæðinu. Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, er þeirrar skoðunar að það hafi verið misráðið að fá undanþágu árið 2003 frá reglum um díoxínmengun. Hún segir að stofnunin muni almennt ekki mæla fyrir undanþágum í framtíðinni fyrir starfsemi sem hugsanlega er mengandi. Þetta var meðal þess sem kom fram á fjölsóttum borgarafundi á Ísafirði vegna Funamálsins fyrir helgi. Fundurinn, eins og fyrri kynningarfundur á Kirkjubæjarklaustri, var að frumkvæði sóttvarnalæknis, Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar. Daníel Jakobsson, bæjarstjóri á Ísafirði, lýsti málinu frá sjónarhóli bæjaryfirvalda. Kom fram í máli hans að öllum hafi verið ljóst að mengun frá Funa væri óásættanleg en engan hafi grunað að það kynni að hafa áhrif á heilsufar fólks. Hann hafnaði því að upplýsingum hefði verið stungið vísvitandi undir stól eða að fjárhagslegir hagsmunir hefðu verið teknir fram yfir hagsmuni íbúa. Hugsanlega hefði átt að kynna betur að díoxín mældist tugfalt yfir mörkum árið 2007, en það hefði ekki verið gert í þeirri trú að mengunin ógnaði ekki hagsmunum fólks. Hann sagði málið ekki til fyrirmyndar og það hefði átt að vera búið að finna lausn á sorpmálum bæjarins. Daníel lýsti áhyggjum sínum af því að ímynd Ísafjarðar og Vestfjarða hefði borið skaða af Funamálinu. Ímyndina yrði að vinna til baka með öllum tiltækum ráðum. Haraldur Briem sóttvarnalæknir útskýrði að rannsóknir erlendis bentu eindregið til þess að íbúar á svæðinu þyrftu engu að kvíða varðandi heilsuspillandi áhrif frá Funa. Mengunina bæri hins vegar að taka alvarlega. Þess vegna myndi sóttvarnalæknir Vestfjarða annast rannsóknir á þeim sem unnu í brennslunni og fleira fólki á Ísafirði. Tekin verða blóð- og sýni úr brjóstamjólk en blý verður einnig mælt í hári eða nöglum en díoxín er líklegt til að finnast þar sem blý mælist. Til stendur að taka jarðvegssýni í Skutulsfirði og von á niðurstöðum eftir tvo til þrjá mánuði. Þá var skorað á bæjaryfirvöld að greiða þeim bætur sem hafa orðið fyrir tjóni. Daníel bæjarstjóri segir að bærinn muni axla þá ábyrgð sem honum beri og vilji liðka fyrir, til dæmis við að skipta út ónýtu fóðri. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Kourani farinn úr landi Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla Innlent Fleiri fréttir Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Sjá meira