Sameining áætluð hjá þrjátíu leikskólum 2. mars 2011 11:30 Talsverðar sameiningar verða í yfirstjórn leikskóla borgarinnar samkvæmt tillögu starfshóps.Fréttablaðið/GVA
Samkvæmt tillögum sem lagðar verða fram í borgarráði á morgun er gert ráð fyrir að þrjátíu leikskólar verði sameinaðir í fjórtán og stjórnendum þeirra, leikskólastjórum og aðstoðarleikstjórum, sagt upp en sumir endurráðnir í yfirmannastöðurnar að nýju. Hinum verður boðið að starfa áfram með aðrar starfsskyldur og lægri laun. Einnig er gert ráð fyrir að frá næsta hausti verði frístundaheimili, sem rekin hafa verið í grunnskólum, sett undir eina stjórn í skólunum sjálfum en verði ekki stýrt annars staðar úr borgarkerfinu eins og nú er. Þá sameinast sex grunnskólar um þrjár yfirstjórnir. Þetta á við um Álftamýrar- og Hvassaleitisskóla, Borga- og Engjaskóla og Korpu- og Víkurskóla. Í tveimur tilvikum á að sameina yfirstjórnir grunnskóla og leikskóla. Þessar tillögur „starfshóps um greiningu tækifæra í lærdómsumhverfi barna í Reykjavíkur" voru kynntar í menntaráði borgarinnar í þriðjudag. Borgarráð mun ákveða á morgun hvort tillagan verður send til umsagnar út í hverfin og skólana. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins er samstaða innan borgarstjórnar með suma þætti þessarar áætlunar en ekki um aðra. Helst óttast menn að við breytinguna muni sumir af reyndustu starfskröftum leikskólanna hverfa á braut á sama tíma og mjög stór árgangur leikskólabarna bíður þess að hefja skólagöngu sína.- gar
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira