Toppfundur um Bakka-álver í New York 2. mars 2011 18:45
Æðstu ráðamenn Alcoa og Landsvirkjunar hittast í New York í næstu viku til að kanna hvort grundvöllur sé fyrir því að ganga til samningaviðræðna um álver við Húsavík. Slétt fimm ár eru frá því Valgerður Sverrisdóttir, þáverandi iðnaðarráðherra, mætti í höfuðstöðvar Alcoa í New York til að setja formlega af stað undirbúningsvinnu vegna álvers við Húsavík, sem bæjarbúar fögnuðu svo samdægurs á veitingastaðnum Gamla Bauki, sem frægt varð. Iðnaðarlóðin á Bakka er enn óröskuð og efasemdir um að þar rísi álver hafa verið vaxandi, sérstaklega eftir að núverandi ríkisstjórn hafnaði að framlengja viljayfirlýsingu við Alcoa í fyrra. Tveir af æðstu ráðamönnum Alcoa lýstu því hins vegar yfir á fundum með iðnaðarráðherra og forstjóra Landsvirkjunar í Reykjavík í síðasta mánuði að þeir hefðu enn fullan hug á því að reisa álver fyrir norðan. Þeir lýstu sig jafnframt reiðubúna að skoða smíði minna álvers til að laga sig að þeirri orku sem býðst í Þingeyjarsýslum en með sameiginlegu mati álvers og virkjana, sem birt var í nóvember, skýrðust þeir kostir. Þar með liggja fyrir allar forsendur til að taka um það ákvörðun hvort Alcoa og Landsvirkjun hefji formlegar samningaviðræður eða segi þessari tilraun lokið. Óvíst er hvort svo afgerandi niðurstaða fæst í næstu viku en þá mun sendinefnd Landsvirkjunar, með Hörð Arnarson forstjóra í fararbroddi, hitta æðstu ráðamenn Alcoa í New York, í sömu húsakynnum og Valgerður setti Bakka-ferlið af stað fyrir fimm árum.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Fleiri fréttir Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“