Sjálfstæðisflokkurinn nýtur meiri stuðnings en stjórnin 21. janúar 2011 07:00
Fleiri styðja Sjálfstæðisflokkinn en Samfylkinguna og Vinstri græn samanlagt samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins. Yrðu niðurstöður kosninga í takt við könnunina gætu Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur myndað meirihlutastjórn. Rétt er að taka niðurstöðum könnunarinnar með talsverðum fyrirvara þar sem aðeins um 54 prósent þeirra sem þátt tóku í könnuninni vildu gefa upp hvaða flokk þeir myndu kjósa yrði gengið til kosninga nú. Þetta gefur sterklega til kynna að lítið hafi dregið úr óánægju almennings með hefðbundna stjórnmálaflokka. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur nú stuðnings 43,4 prósenta samkvæmt könnuninni, sem er 7,8 prósentustigum meira en í könnun Fréttablaðsins í september síðastliðnum. Alls sögðust 25,8 prósent styðja Samfylkinguna, 2,6 prósentustigum meira en í september. Um 16,5 prósent styðja nú Vinstri græn, og hefur fylgið minnkað um 9,1 prósentustig frá því í september í fyrra. Stjórnarflokkarnir mælast með stuðning 42,3 prósenta þeirra sem gefa upp afstöðu til flokka, og fengju samtals 28 þingmenn kjörna yrðu þetta niðurstöður þingkosninga. Framsóknarflokkurinn nýtur samkvæmt könnuninni stuðnings 11,8 prósenta kjósenda, 4,5 prósentustigum meira en í september. Aukinn styrkur Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks opnar á möguleikann á gamalkunnu stjórnarformi. Flokkarnir gætu myndað meirihluta með 35 þingmenn yrðu niðurstöður kosninga í takt við könnun Fréttablaðsins. Samkvæmt könnuninni hrynur stuðningur við Hreyfinguna frá síðustu könnun. Um 2,1 prósent styður flokkinn nú, en 5,6 prósent studdu hann í september í fyrra.- bj
Mest lesið Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir Innlent Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Innlent Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Erlent Hækka hitann í Breiðholtslaug Innlent „Við vitum að áföllin munu koma“ Innlent Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Innlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Fleiri fréttir „Óásættanlegt“ að taka borgarfulltrúa af gestalistanum Það hafi víst verið haft samráð við sjávarútveginn Píratar bjóða ekki fram í vor og Sigurbjörg Erla hættir „Við vitum að áföllin munu koma“ Alexandra sækist eftir oddvitasætinu Pírati skiptir um skútu og makrílsamningur fellur í grýttan jarðveg Dóra Björt til liðs við Samfylkinguna Æfur vegna samnings um makríl: „Skiljum vini okkar Grænlendinga eftir á köldum klaka“ Engin breyting á trúfélagsskráningu landsmanna Bein útsending: Boða óvænt til blaðamannafundar í Ráðhúsinu Hækka hitann í Breiðholtslaug Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Umferðarslys á Breiðholtsbraut Orð gegn orði um samskipti innan almannavarnarnefndar Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Faðir sem missti þrjú börn í Súðavík tjáir sig um uppgjör rannsóknarnefndar Bíll bilaði og Hvalfjarðargöngum lokað um stund Kanna áhuga á mögulegu framboði Guðlaugs í borginni Vistunin sé kerfisbundið brot á mannréttindum Hvorki álit né vangaveltur um ábyrgð einstaklinga í skýrslunni Þau eru tilnefnd sem maður ársins Lögðu hald á sautján skotvopn og skotfæri um helgina Stór mál standa enn út af Í takt við það sem verið hefur Aðalsteinn gefur kost á sér í oddvitasæti og fer í leyfi Bein útsending: Kynna skýrslu um snjóflóðið í Súðavík Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Súðavíkurskýrslan afhent forseta Alþingis Sjá meira