Skora á stjórnvöld að stórefla atvinnulíf 27. febrúar 2011 13:38 Akureyri.
Aðalfundur Félags málmiðnaðarmanna á Akureyri skorar á stjórnvöld að stórefla atvinnulíf í Þingeyjasýslum, varar við því að Reykjavíkurflugvöllur verði lagður niður og farið verði í forval vegna Vaðlaheiðarganga svo framkvæmdir við þau geti hafist í sumar. Á aðalfundinum sem haldinn var í gær voru samþykktar þrjár ályktanir. Í ályktun um Reykjavíkurflugvöll er varað við því að flytja miðstöð innanlandsflugsins frá Reykjavíkurflugvelli. Á næstu árum muni rísa hátæknisjúkrahús í Reykjavík sem ætlað sé að þjóna öllu landinu. Mikilvægi nálægðar flugvallarins við sjúkrahúsið sé ótvírætt og geti skipt sköpum auk þess sem flugvöllurinn gegni lykilhlutverki í öryggisneti landsins Þá minnir aðalfundurinn á að í höfuðborgini sé staðsettar höfuðstöðvar stjórnsýslu, auk flestra opinberra stofnana landsins á sviði viðskipta-, mennta-, menningar- og heilbrigðismála. Sú staðreynd kalli eðlilega á greiðar samgöngur til og frá borginni, öðruvísi geti Reykjavík varla staðið undir nafni sem höfuðborg allra landsmanna. Aðalfundur málmiðnaðarmanna á Akureyri skorar einnig á ríkisstjórnina að láta sem fyrst fara fram forval vegna gerðar Vaðlaheiðarganga þannig að framkvæmdir geti hafist í sumar. Öll gögn séu þegar til staðar auk þess sem sveitarfélögin á svæðinu séu einhuga um mikilvægi væntanlegra jarðganga. Göngin muni stórauka öryggi vegfarenda, ekki síst íbúa austan Vaðalheiðar sem þurfi að sækja margháttaða þjónustu, svo sem bráðaþjónustu á heilbrigðissviði um Víkurskarð. Aðalfundurinn bendir á að heimamenn styðji áætlanir um hóflegt veggjald um göngin, þannig að fjárfestingin skili sér til baka á eðlilegum tíma. Aðalfundurinn hvetur ríkisstjórn Íslands til að stuðla ákveðið að því að stórefla atvinnulífið í Þingeyjarsýslum sem allra fyrst. Skoðanakannanir meðal íbúa á undanförnum árum sýni glögglega að þeir krefjist þess að nýting orkuauðlinda héraðsins fari til stórfelldrar atvinnuuppbyggingar á svæðinu. Íbúaþróun á Norðausturlandi hafi verið neikvæð. Einsýnt sé að tími framkvæmda sé runninn upp í Þingeyjarsýslum. Aðalfundurinn samþykkti einnig í tilefni 70 ára afmæli félagsins að Sjúkrasjóður þess gefi Sjúkrahúsinu á Akureyri eina milljón króna til tækjakaupa í samráði við stjórnendur sjúkrahússins.
Mest lesið Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fleiri fréttir Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ Sjá meira