Vilja takmarka ábyrgð flugfélaga eftir gosið í Eyjafjallajökli Lóa Pind Aldísardóttir skrifar 4. maí 2011 12:07 Eldgosið í Eyjafjallajökli hafði ófyrirséðar afleiðingar
Eldgosið í Eyjafjallajökli gæti orðið til að fólk fái flugmiða sína í framtíðina ekki bætta þó að ferðir falli niður vegna óveðurs eða náttúruhamfara. Þúsundir manna urðu strandaglópar eða komust ekki leiðar sinnar þegar gosmökkurinn úr Eyjafjallajökli setti flugumferð á norðurhveli jarðar úr skorðum í tíu daga fyrir rúmu ári. Flugfarþegar í Evrópu gátu hins vegar stólað á reglur Evrópusambandsins sem kveða á um að flugfélög bæti farþegum innan Evrópu tjónið sem þeir verða fyrir vegna seinkana - og sömuleiðis farþegum sem eiga bókað flug með evrópskum flugfélögum til annarra heimsálfa. Flugfélögin voru hins vegar ekki sátt við þá ráðstöfnun og sögðu regluna setta til að bæta fólki upp um það bil sólarhringsseinkanir en ekki svo viðamikla truflun. Þetta kemur fram á breska fjármálafréttavefnum, This is money. En þar kemur einnig fram að nú íhugi framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að takmarka ábyrgð flugfélaga þegar flugumferð truflast vegna ófyrirsjáanlegra aðstæðna. Og hvort setja eigi þak á bætur félaganna til farþega. Flugfélögin telja að ferðatryggingar eigi að bæta fólki upp tap vegna seinkana - það gæti hins vegar orðið flókið ef flugumferð raskast vegna til dæmis eldgosa því gjarnan eru náttúruhamfarir undanskildar í orðalagi tryggingaskilmála.
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Fleiri fréttir Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Sjá meira