Lík kornabarns finnst í ruslagámi í Reykjavík 3. júlí 2011 00:23 Mynd tengist frétt ekki beint Mynd úr safni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú voveifilegt lát barns en lík þess fannst í ruslagámi við hótel í Reykjavík þar sem kona, sem talin er hafa fætt það, vinnur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir að komið hafi verið með konu í gærmorgun á bráðamóttöku Landspítalans vegna blæðinga og kviðverkja. "Þrátt fyrir að konan kannaðist ekki við að hafa verið ófrísk, töldu læknar að hún hefði misst fóstur og verkir og blæðing stöfuðu af því. Við nánari skoðun voru læknar þess fullvissir að hún hefði fætt barn þá skömmu áður eða á síðasta sólarhring," segir í tilkynningunni. Lögreglu var þá gert viðvart og hófst rannsókn og eftirgrennslan eftir barninu. Skömmu síðar fann lögreglan nýfætt barn í ruslagámi við hótelið þar sem konan vinnur, en vitað var að hún hefði verið þar í gærmorgun. Barnið var látið þegar það fannst en talið er að það hafi fæðst lifandi. Konan er í gæslu lögreglu á sjúkrahúsi en unnusti hennar í haldi lögreglu. Í tilkynningunni segir að fjöldi lögreglumanna hafi komið að málinu og standa yfirheyrslur yfir. Samkvæmt heimildum Vísis voru lögreglumenn að störfum við hótelið í allan gærdag. Þar var svæði girt af með gulum borða og lögreglumenn rannsökuðu vettvang. Þegar yfirmenn lögreglunnar voru spurðir um málið í gærdag vörðust þeir allra frétta og sögðust ekki vita hvað um væri að vera á hótelinu.
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira