Íslenskt fyrirtæki og Wikileaks ætla í mál við Visa og Mastercard 3. júlí 2011 13:48 Mynd úr safni
Datacell ehf. og Wikileaks ætla að höfða mál á hendur kortafyrirtækjunum Visa og Mastercard í Danmörku og á Íslandi vegna afskipta af greiðslum til Wikileaks. Þá ætla fyrirtækin að kvarta til Evrópusambandsins vegna meintrar misnotkunar stóru kortafyrirtækjanna á markaðsráðandi stöðu en þau eru með nær 100 prósent markaðarins í Evrópu. Viðurlögin við brotum á samkeppnisreglum Evrópusambandsins eru sektir sem geta numið allt að 10 prósent af veltu viðkomandi fyrirtækis eða fyrirtækjasamstæðu. Þar að auki er nú í nær öllum EES ríkjum unnt að höfða mál á hendur brotlegum fyrirtækjum til heimtu skaðabóta fyrir það tjón sem þau hafa valdið með samkeppnisbrotum sínum. Datacell er íslenskt fyrirtæki sem hýsir vefsíðu Wikileaks en í lok síðasta árs fóru bandarísk stjórnvöld fram á að Visa og Mastercard skyldu loka á greiðslur til Wikileaks í gegnum Datacell. DataCell sótti strax í kjölfarið um að fá aðgang að alþjóðlegu greiðslukortakerfunum í gegnum önnur aðildarfyrirtæki þeirra, til dæmis í Sviss, en án árangurs. Wikileaks segir að samtökin hafi orðið fyrir milljóna tjóni vegna lokunarinnar. Rök DataCell eru meðal annars þau að í engu landi hafi verið sýnt fram á að starfsemi Wikileaks sé andstæð lögum. Engin eignar- eða stjórnunartengsl séu á milli DataCell og Wikileaks og samskipti þeirra sé einungis viðskiptalegs eðlis. Þá sé þjónustan sem DataCell veitir Wikileaks á engan hátt frábrugðin þeirri greiðslugáttarþjónustu sem samkeppnisaðilar DataCell veita samtökum og fyrirtækjum í Evrópu og um víðan heim.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Innlent Óvenjulegu tímabili að ljúka Innlent Fleiri fréttir Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Sjá meira