Vilja reisa aðra virkjun í Glerá 28. febrúar 2011 11:00
Orkufyrirtækið Fallorka vill byggja tveggja megavatta vatnsaflsvirkjun í Glerá í Glerárdal. Erindi þess efnis bíður afgreiðslu hjá Akureyrarbæ. Andri Teitsson, framkvæmdastjóri Fallorku, segir fyrirtækið hafa fengið nokkuð jákvæð viðbrögð. „Við teljum þetta býsna gott verkefni því það eru ekki mikil umhverfisáhrif, þetta er nálægt byggðinni og það stendur ekki til að gera stórt uppistöðulón." „Þetta er náttúrulega lítil virkjun, en samt munar um hana fyrir notkunina á Akureyri. Þarna fengjust um fimmtán prósent af orkunotkun á Akureyri." Virkjunin yrði nær tvöföldun á orkuframleiðslu fyrirtækisins, sem rekur nú þegar tvær virkjanir í Eyjafirði. Andri segir að kostnaðaráætlun hljóði upp á 430 milljónir króna og virkjunin virðist vera mjög hagkvæmur virkjunarkostur. „Ef þetta verður samþykkt tekur við nánari hönnun og útfærsla." Margra mánaða undirbúningsvinna tæki þá við. Fallorka óskaði eftir því við bæinn þann 11. febrúar að tekin yrði afstaða til breytinga á aðal- og deiliskipulagi dalsins og hafin yrði vinna með það fyrir augum að fyrirtækinu yrði heimilað að reisa virkjunina. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum 17. febrúar. - þeb
Mest lesið Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum Innlent Brenndu rangt lík Erlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Innlent Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Erlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Fleiri fréttir Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Sjá meira