7,6% atvinnuleysi árið 2010 28. febrúar 2011 09:08 Atvinnuþátttaka var 81% á síðasta ári Mynd: GVA
Atvinnuleysi á árinu 2010 var að meðaltali 7,6%. Á árinu voru 180.900 á vinnumarkaði. Af þeim voru 167.300 starfandi en 13.700 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 81% og hlutfall starfandi 74,9%. Fjöldi atvinnulausra stendur nánast í stað frá árinu 2009, en frá árinu 2008 hefur atvinnulausum fjölgað um 8.200. Sama má segja um starfandi, fjöldi þeirra hefur lítið breyst frá árinu 2009 miðað við fækkun upp á 11.300 manns frá árinu 2008. Síðan reglulegar mælingar Hagstofunnar hófust árið 1991 hefur hlutfall starfandi aldrei mælst minna og atvinnuleysi meira en árið 2010. Árið 2010 var atvinnuleysi að meðaltali 9,5% í Reykjavík, 7,5% í nágrenni Reykjavíkur og 5,5% utan höfuðborgarsvæðisins. Mynd Hagstofa.isLangtímaatvinnulausum fjölgar Af þeim sem voru atvinnulausir árið 2010 voru að jafnaði 2.800 manns búnir að vera atvinnulausir í 1-2 mánuði eða 20,8% atvinnulausra. Til samanburðar höfðu 3.700 manns verið atvinnulausir í 1-2 mánuði árið 2009 eða 28,3% atvinnulausra. Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir. Árið 2010 höfðu um 2.800 manns verið atvinnulausir svo lengi eða 20,3% atvinnulausra. Árið 2009 voru þeir sem höfðu verið atvinnulausir ár eða lengur um 900 manns eða 6,8% atvinnulausra.Heildarvinnutími 39,2 tímar. á viku Árið 2010 var heildarvinnutími þeirra sem voru við vinnu í viðmiðunarvikunni að meðaltali 39,2 klst., 44,7 klst. hjá þeim sem voru í fullu starfi og 23,3 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi. Heildarvinnutími minnkaði lítillega milli ára en var 39,5 árið 2009. Þessar niðurstöður eru meðal efnis í nýju hefti Hagtíðinda um vinnumarkaðinn árin 1991 til 2010.
Mest lesið Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Innlent Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum Innlent Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Innlent Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Innlent Leigubílstjóri stunginn af farþega Innlent Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Innlent Fleiri fréttir „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Varað við hvössum vindstrengjum við fjöll og á heiðum Adolf Ingi fékk svar frá Stefáni: „Aumt að skýla sér á bak við Fjölmiðlanefnd“ Kvöldfréttir Sýnar í heild sinni Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Sjá meira