Engin lögregla lengur í Dalasýslu 28. febrúar 2011 12:06 Mynd úr safni
Síðasta vaktin hjá lögreglunni í Búðardal er í dag því eftir vinnudaginn verður lögreglustöðinni í Dalasýslu lokað. Andmæli íbúa megnuðu ekki að snúa við ákvörðun stjórnvalda en Dalamenn afhentu í lok janúarmánaðar Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra undirskriftalista með 1.368 nöfnum með ákalli til ráðherrans um að hlífa þessu eina stöðugildi lögreglumanns í héraðinu. Ögmundur hafði tekið vel á móti forsvarsmönnum undirskriftasöfnunarinnar, sagt að málið yrði skoðað og farið yfir það. Þá hafði sveitarstjórn Dalabyggðar komið jákvæð af fundi ráðherrans nokkru síðar, að því er fram kemur á vefsíðu Búðardals. En allt kom fyrir ekki. Dalamenn sögðu þessa ákvörðun ekki aðeins vanhugsaða heldur skerti hún almenn mannréttindi og öryggistilfinningu íbúa Dalabyggðar og nærsveita. Þeir bentu á að lögregluumdæmið væri gríðarlega víðfeðmt og ekki væri boðlegt að hafa útkallsstöð fyrir Dalabyggð staðsetta í Borgarnesi í 80 kílómetra fjarlægð, auk þess sem yfir fjallveginn Brattabrekku væri að fara. Þá hefði umferð aukist gríðarlega í gengum Dali, meðal annars með tilkomu nýs vegar um Arnkötludal, en Ísafjarðarumferðin hefur nú að mestu færst á þann veg.
Mest lesið Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Innlent Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Innlent Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Innlent Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Innlent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ Innlent Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Innlent Fleiri fréttir „Íslandsmet í óvandaðri lagasetningu“ Skýrt að fleiri hafi brotið af sér í máli fötluðu konunnar Engar skýringar frá saksóknara, Íslandsmet í umræðum og óvæntur hvalur Íslandsmet slegið í málþófi Ekið á sjö ára barn í Borgartúni Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Skorið á bönd palestínska og úkraínska fánans Konan er komin í leitirnar Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Alls 246 ökumenn sektaðir og átta sviptir vegna hraðaksturs Eldri borgarar skemmtu sér í múmínkastalanum Menn á sextugs- og sjötugsaldri grunaðir um stórfellt fíkniefnabrot Nýjasta útspil Ísraela á Gasa minni á „lokalausn“ nasistanna Handviss um að Sjálfstæðisflokkurinn fái yfir þrjátíu prósent Kolfelldu tillögu minnihlutans: „Það er meirihlutinn sem stýrir dagskránni“ „Þetta virðast vera einu gjöldin sem ekki má snerta“ Skráningargjöld, fylgistap og gettó á Gasa Bæjarráð Voga vill gera ráð fyrir flugvelli í Hvassahrauni Leggur til þjóðaratkvæðagreiðslu um bókun 35 Piltur reyndi að stöðva árás föður sem ógnaði móðurinni með hníf Flugvél Play lenti í hagléli og þurfti að snúa við Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Óskar viðbragða ráðherra við löngum afgreiðslutíma Lögregla lýsir eftir heilabilaðri konu á Akureyri „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Vilja taka fjármálaáætlun til umræðu Einu verslun Þingeyringa lokað Aðsóknarmet slegið í lögreglunám Skipstjóri handtekinn í Reykjavíkurhöfn Ákvörðun dómsmálaráðherra gríðarleg vonbrigði Sjá meira