Þátttakendur í eineltiskönnun sviknir um nafnleynd Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. febrúar 2011 20:30 Fjármálaráðuneytið
Fjármálaráðuneytið braut persónuverndalög þegar þátttakendum í könnun á einelti meðal ríkisstarfsmanna var veitt röng fræðsla um með hvaða hætti svör yrðu rekjanleg til þeirra. Persónuvernd komst að þessari niðurstöðu í úrskurði sem birtur var í dag. Forsaga málsins er sú að í nóvember síðastliðnum barst Persónuvernd ábending frá lögreglu um að persónuupplýsingar hefðu í september síðastliðnum verið teknar ófrjálsri hendi frá Miðlun ehf. af fyrrum starfsmanni þess. Miðlun sá um framkvæmd könnunarinnar. Meðal þess sem fyrrum starfsmaðurinn tók voru svör sem einstaklingar gáfu þegar þeir tóku þátt í könnun fjármálaráðuneytisins á einelti meðal ríkisstarfsmanna. Í framhaldi af ábendingu lögreglu fór Persónuvernd, hinn 19. nóvember síðastliðinn, í heimsókn til Miðlunar og skoðaði sérstaklega vinnslu þess fyrir fjármálaráðuneytið vegna umræddrar eineltiskönnunar. Þá upplýsti Miðlun að þar til þjófnaðurinn komst upp hefði skrá yfir spurningar og svör við þeim verið auðkennd með nöfnum þátttakenda. Þátttakendunum hafði hins vegar verið lofað að könnunin væri nafnslaus. Ýmsum gögnum um málið hefði síðan verið eytt eftir að upp komst um þjófnaðinn. Í úrskurði Persónuverndar segir að rannsóknin á einelti meðal ríkisstarfsmanna hafi verið unnin samkvæmt ákvörðun fjármálaráðuneytisins og hafi ákvörðunarvald um fyrirkomulag könnunarinnar verið í höndum þess. Því líti Persónuvernd á fjármálaráðuneytið sem ábyrgðaraðila vinnslunnar. Persónuvernd segir að þessi þáttur lúti einungis að þætti fjármálaráðuneytisins. Tekið verði á þætti Miðlunar í öðru máli.
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður Fleiri fréttir Fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Sjá meira