Íslenskir karlar þeir langlífustu í Evrópu 22. febrúar 2011 09:08 Lífslíkur íslenskra karla hafa batnað mjög á undanförnum árum. Frá árinu 2000 hafa þeir bætt við sig rúmlega tveimur árum í meðalævilengd. Mynd: Vilhelm Gunnarsson
Árið 2010 dóu 2.017 einstaklingar sem búsettir voru á Íslandi, 1.063 karlar og 954 konur. Dánartíðni var 6,3 látnir á hverja 1.000 íbúa og stóð í stað frá árinu 2009. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands. Ungbarnadauði á Íslandi var 2,2 börn af hverjum 1.000 lifandi fæddum árið 2010 en var 2,0 börn af hverjum 1.000 lifandi fæddum á árabilinu 2006-2010. Árið 2010 gátu nýfæddir drengir vænst þess að ná að meðaltali 79,5 ára aldri, en stúlkur 83,5 ára aldri. Á fimm ára tímabili, 2006-2010 var meðalævi karla 79,4 ár en kvenna 83,1 ár.Ungbarnadauði lægstur á Íslandi meðal Evrópuþjóða Árið 2009 var ungbarnadauði á Íslandi 1,8 af 1.000 lifandi fæddum. Sama ár var ungbarnadauði í Evrópusambandinu 4,3. Hvergi í Evrópu var ungbarnadauði jafn lágur og hér árið 2009. Næstir Íslandi komu Slóvenar en þar var ungbarnadauði 2,4 af 1.000 lifandi fæddum. Annars staðar á Norðurlöndum var ungbarnadauði á bilinu 2,5-3,1. Í Evrópu var ungbarnadauði tíðastur í Tyrklandi eða 15,3 af hverjum 1,000 lifandi fæddum árið 2009.Íslenskir karlar þeir langlífustu í Evrópu Lífslíkur íslenskra karla hafa batnað mjög á undanförnum árum. Frá árinu 2000 hafa þeir bætt við sig rúmlega tveimur árum í meðalævilengd. Árið 2009 var meðalævilengd íslenskra karla 79,7 ár og skipuðu þeir fyrsta sætið meðal Evrópuþjóða það ár. Í öðru sæti voru karlar í Sviss en þar gátu nýfæddir drengir vænst þess að verða 79,3 ára. Styst er meðalævilengd evrópskra karla í Úkraínu (62,0 ár), Rússlandi (62,4 ár) og Hvíta-Rússlandi (64,7 ár).Íslenskar konur í fimmta sæti Lengi vel voru lífslíkur íslenskra kvenna hæstar í heiminum en þær hafa látið undan síga á þessari öld. Árið 2009 var meðalævilengd íslenskra kvenna 83,3 ár og skipuðu þær fimmta sætið meðal Evrópuþjóða. Elstar evrópskra kvenna verða konur í Frakklandi (84,3 ár), Spáni (84,2 ár) og Sviss (84,0 ár). Meðalævilengd evrópskra kvenna er styst í Moldóvu (73,3 ár) og Úkraínu (73,6 ár). Um er að ræða bráðabirgðatölur yfir dána fyrir árið 2010. Þær verða endurskoðaðar í byrjun september 2011. Sjá fréttina á vef Hagstofunnar.
Mest lesið Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Innlent Fleiri fréttir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Þrjátíu prósent Samfylkingarfélaga greitt atkvæði það sem af er Algengast að börn beiti foreldra sína ofbeldi og prófkjör Samfylkingarinnar „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Um 900 manns nú með lögheimili í Grindavík „Það átti að taka mig í karphúsið“ Selenskí undir miklum þrýstingi Tímamótaviðræður hafnar og ögurstund hjá Samfylkingunni Eldur í sendibíl á Miklubraut Arnar Grétarsson í stjórnmálin Gjörbreytt Langahlíð fyrir milljarð Segist ekki muna eftir að hafa sent skilaboðin „Einhver SA prins mættur til að láta sem allt sé bara kózý“ Endurtekin og alvarleg mál valda áhyggjum Hiti færist í leikinn: „Frægur karl með enga reynslu“ Sjá meira