Tannlæknar segja upp gjaldfrjálsri forvarnarskoðun barna Karen Kjartansdóttir skrifar 22. febrúar 2011 19:04
Langflestir tannlæknar landsins hafa sagt upp samningi við sjúkratryggingar um gjaldfrjálsa forvarnaskoðun barna en þeirri skoðun var komið á laggirnar til að reyna að tryggja að sem flest börn kæmust til tannlæknis. Það vakti mikil viðbrögð í samfélaginu þegar svokölluð Munnís rannsókn leiddi í ljós árið 2007 að íslensk börn voru með mun fleiri skemmdar tennur en önnur börn á Norðurlöndum. Nokkrum árum áður höfðu íslensk börn hins vegar verið við mjög góða tannheilsu. Í rannsókninni var bent á að þá höfðu skólatannlækningar voru við lýði og að greiðslur almannatrygginga greiddu nær alfarið kostnað við grunnþjónustu barna og unglinga. Þáverandi heilbrigðisráðherra reyndi að bregðast við stöðunni með því að koma af stað gjaldfrjálsum eftirlitsskoðunum fyrir þrjá árganga barna, það er þriggja, sex og tólf ára. Samningurinn tók þó ekki til tannviðgerða. Síðan þá hefur honum verið breytt talsvert og í engu samráði við tannlækna að sögn formanns Tannlækafélagsins. Því hafi langflestir tannlæknar ákveðið að segja sig frá samningum. „Samningurinn rann út um áramótin og ekki setist niður á ný við samningaborðið. Það kom tilskipun að ofan um að halda áfram en tannlæknar eru ósáttir við skilyrði í samningum sem hafa aldrei verið rædd," segir Sigurður Benediktsson, formaður Tannlæknafélags Íslands. Hann segir að til dæmis séu tannlæknar krafnir um að koma sér upp töluverðum tölvubúnaði og forritum til að geta sent inn rafræna reiknaninga vegna samningsins. Samningurinn sé hins vegar það lítill hluti af starfi tannlækna að slíkar kröfur svari ekki kostnaði.
Mest lesið Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Erlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Innlent Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Erlent Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Innlent Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Erlent Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Innlent Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Erlent Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Erlent Fleiri fréttir Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Þurfum ekki að loka landamærum en þurfum að opna augun Leggjast yfir hvað megi bæta í Reynisfjöru „Við erum auðvitað mjög slegin yfir þessu slysi“ Fullt af furðubátum keppa á Flúðum í dag Níu ára stúlka frá Þýskalandi sem lést Tilkynnt um þrjár líkamsárásir en flestir gestir „vel búnir, kurteisir og til fyrirmyndar“ Vinnsla stöðvuð í Vatnsfellsvirkjun vegna leka Ekki hlynntur lokun Reynisfjöru og líkamsárásir um helgina Meistaraverkefni sem endaði í The Lancet: „Af hverju ekki að miða hátt?“ Herjólfur siglir í dag Bandaríkin, innflytjendur og Gasa á Sprengisandi Olli slysi undir áhrifum fíkniefna Vestmanneyingar „slógu velferðarskjaldborg“ yfir gesti Búast við gasi á höfuðborgarsvæðinu og Akranesi Landsvirkjun sé ekki „löngu búin að semja“ við alla landeigendur Fagna afmæli virkjunar sem sökkti sveitajörðum en rafvæddi síldarbæ Kvenfólkið í Eyjum bjargaði deginum Skinkur og Sykurpabbar skemmta sér á Egilsstöðum Blússandi stemning á harmonikkuhátíð á Borg Stúlkan sem fór í sjóinn er látin Aldrei upplifað annað eins: „Það eru öll stígvél á þessari eyju uppseld“ Stígvélaskortur í Eyjum og brekkusöngur í Kópavogi Þjóðhátíðarbrennunni frestað til sunnudags Sjá meira