Siðaðra manna háttur að útkljá mál fyrir dómstólum 22. febrúar 2011 20:11 Ragnar Hall telur vænlegra að samþykkja nýja samninga.
Hæstaréttarlögmaðurinn Ragnar Hall sagði í kastljósi að það væri hans mat að það væri Íslendingum fyrir bestu að gangast við nýju Icesave-frumvarpi en áréttaði þó að hann viðurkenndi ekki beinlínis greiðsluskyldu ríkissjóðs í málinu. Reimar Pétursson hæstaréttarlögmaður, sagði eðlilegt og í raun siðaðra manna háttur að láta reyna á málið fyrir dómstólum. Hann benti á að það væri svo hægt að semja á öllum tímum dómsmálsins þar til niðurstaða félli. Þegar Sigmar Guðmundsson, spyrill Kastljóss, spurði hvort málið væri ekki í raun prinsippmál svaraði Ragnar: „Það eru svipuð sjónarmið og maðurinn sem sagðist frekar keyra bensínlaus en að kaupa bensín af Essó.“ Ragnar benti á að það væri afar mikilvægt fyrir Ísland að hafa aðgang að erlendu lánsfé auk þess sem traust á Íslandi myndi minnka gríðarlega hafnaði þjóðin samningnum eftir að hafa reynt að semja um málið þrisvar sinnum. Hann bætti við að þetta væri í raun bara hættumat. „Mitt mat er að það borgar sig betur að taka þessum samningum og setja málið aftur fyrir sig,“ sagði Ragnar. Reimar sagði að nýir samningar væru vissulega betri en þeir á undan sem voru felldir í þjóðaratkvæðagreiðslu á síðasta ári. Hann benti hinsvegar á að sjónarmiðið í samningunum um að Bretar og Hollendingar væru skaðlausir, og að Íslendingar eini bæru allan skaðann af málinu, væri vægast sagt umdeilanlegt. Reimar telur ekki að það verði einhverskonar kollsteypa verði samningarnir felldir. Hann sagði mörg álitamál fólgin í samninginum önnur en þau að Íslendingar þyrftu að greiða reikningana. Reimar benti til að mynda á að þó svo færi að Íslendingar yrðu dæmdir til þess að greiða samninginn þá væri það ekki sjálfgefið að Íslendingar yrðu dæmdir til þess að greiða hæstu mögulegu upphæðina með dráttarvöxtum. „Ég held að þetta yrðu flókin málaferli sem tæku langan tíma og á þeim tíma myndi ýmislegt skýrast, svo sem endurheimtur í þrotabú Landsbankans,“ sagði Reimar. Að lokum spurði Sigmar lögmennina um þá kröfu Íslendinga um að lögfróðir menn kæmu með einfaldar lausnir á málunum. Ragnar svaraði þá: „Það er oft sem það er ekkert eitt rétt svar til við spurningunni. Það þarf bara að beita skynseminni til þess að komast að niðurstöðu.“
Mest lesið Kvikuhlaup hafið í Svartsengi Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Innlent Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Innlent Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum Innlent „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ Innlent Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Innlent „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Innlent Fleiri fréttir Kvikuhlaup hafið í Svartsengi Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Sjá meira