Persónuvernd hefur kært varðveislu Miðlunar ehf., á persónuupplýsingum, sem safnað var við gerð könnunar á einelti ríkisstarfsmanna, til lögreglunnar. Þetta kemur fram í úrskurði Persónuverndar.
Forsaga málsins er sú að í nóvember síðastliðnum barst Persónuvernd ábending frá lögreglu um að persónuupplýsingar hefðu í september síðastliðnum verið teknar ófrjálsri hendi frá Miðlun ehf. af fyrrum starfsmanni þess.Miðlun sá um framkvæmd könnunarinnar. Meðal þess sem fyrrum starfsmaðurinn tók voru svör sem einstaklingar gáfu þegar þeir tóku þátt í könnun fjármálaráðuneytisins á einelti meðal ríkisstarfsmanna.
Í framhaldi af ábendingu lögreglu fór Persónuvernd, hinn 19. nóvember síðastliðinn, til Miðlunar og skoðaði sérstaklega vinnslu þess fyrir fjármálaráðuneytið vegna umræddrar eineltiskönnunar. Þá upplýsti Miðlun að þar til þjófnaðurinn komst upp hefði skrá yfir spurningar og svör við þeim verið auðkennd með nöfnum þátttakenda. Þátttakendunum hafði hins vegar verið lofað að könnunin væri nafnslaus. Ýmsum gögnum um málið hefði síðan verið eytt eftir að upp komst um þjófnaðinn.
Samkvæmt fyrirliggjandi vinnslusamningi milli ráðuneytisins og Miðlunar ehf. átti að geyma svör rekjanleg í að minnsta kosti tvær vikur frá því að þau voru gefin. Hins vegar kom í ljós að Miðlun geymdi þau mun lengur eða allt þar til þeim var eytt eftir að rannsókn lögreglu hófst.
Þá segir ennfremur í úrskurðinum að Miðlun skuli senda Persónuvernd öryggisstefnu, áhættumat og skjalfestingu á öryggisráðstöfunum þar sem lýst verði verkferlum er girði fyrir heimildarlausa varðveislu persónupplýsinga.
Miðlun annast gerð skoðana- og viðhorfskannana. Fyrirtækið rekur úthringiver til gagnaöflunar fyrir símakannanir og veitir alhliða þjónustu við gerð netkannana.
Persónuvernd kærir Miðlun til lögreglunnar

Tengdar fréttir

Þátttakendur í eineltiskönnun sviknir um nafnleynd
Fjármálaráðuneytið braut persónuverndalög þegar þátttakendum í könnun á einelti meðal ríkisstarfsmanna var veitt röng fræðsla um með hvaða hætti svör yrðu rekjanleg til þeirra. Persónuvernd komst að þessari niðurstöðu í úrskurði sem birtur var í dag.