Kefluðu mann og rændu hann 30. maí 2011 05:00 Ofbeldismennirnir bundu hendur fórnarlambsins. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur í átján mánaða fangelsi, meðal annars fyrir rán og frelsissviptingu. Þá var hann dæmdur til að greiða fórnarlambinu 450 þúsund krónur í miskabætur. Ofbeldismaðurinn neyddi fórnarlambið, í félagi við tvo aðra menn, með ofbeldi til að millifæra 110 þúsund krónur yfir á reikning eins þeirra. Að auki söfnuðu ránsmennirnir verðmætum í íbúðinni, þar á meðal 80 þúsund krónum í peningum. Mál þess sem nú var dæmdur var skilið frá málum hinna tveggja og dæmt sérstaklega. Þremenningarnir sviptu manninn frelsi á heimili hans við Hringbraut í Reykjavík í desember 2009. Þeir beittu hann ofbeldi í því skyni að ná frá honum verðmætum, slógu hann í andlitið, tóku hann hálstaki, fjötruðu hendur hans og tróðu tusku upp í munn hans og kefluðu hann. Sá sem nú var dæmdur játaði sök fyrir dómi. Hann var jafnframt fundinn sekur um að hafa tekið bíl í heimildarleysi og sett á hann skráningarmerki, sem hann stal af öðrum bíl. Maðurinn á langan sakaferil og hefur meðal annars hlotið fimmtán refsidóma. - jss
Mest lesið Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Innlent Rauð norðurljós vegna kórónugoss Innlent Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Erlent Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Innlent Deilt um verðhækkanir Veitna Innlent Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Innlent Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Erlent Íslendingur handtekinn á EM Innlent Hljóp á sig Innlent Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Innlent Fleiri fréttir Lamdi konu stuttu eftir að hann var stunginn Sænski herinn með viðbúnað á Íslandi Loðnuvertíð hafin og floti farinn til loðnumælinga Deilt um verðhækkanir Veitna Veita hjúkrunarheimilum ráðgjöf vikulega vegna drykkju eldri borgara Ráðherra hafi gefið veiðileyfi á sig Rauð norðurljós vegna kórónugoss Hljóp á sig Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Vegagerðin ræðst í úrbætur á slysstað banaslyss Össur um öryggismálin, vandi vinstrisins og falin fíkn eldri borgara Íslendingur handtekinn á EM Ráðuneytið vill að fleiri bjóði sig fram Ólafur sakar Ingu um að vera sjúka í að láta mynda sig við skóflustungur „Dapurlegt að gera ákvarðanirnar tortryggilegar“ Hundaeigendur hvattir til að vera á varðbergi Hafi brotist inn til föður barnsmóður sinnar og reynt að myrða hann Handtökur, húsleit og haldlögð vopn í lögregluaðgerðum á Akureyri Vegagerðin bæti hringveginn eftir að grjót banaði ferðamanni Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sjá meira