Innlent

Black Pistons hálfgildir meðlimir: Hamingjuóskir frá Evrópu

Valur Grettisson skrifar
Black Pistons menn eru orðnir Outlaws prospect.
Black Pistons menn eru orðnir Outlaws prospect.
„Við höfum fengið fregnir af því að þeir hafi hlotið þessa stöðu,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um nýja stöðu vélhjólaklúbbsins Black Pistons, sem nú er orðinn Outlaw prospect.

Tilkynningu um þetta má finna á erlendri heimasíðu vélhjólaklúbbsins Outlaw. Þar er hinum nýju félögum óskað til hamingju á spjallsvæði vefsins. Þeir fá meðal annars hlýjar kveðjur frá Frakklandi og Svíþjóð.

Tveir meðlimir klúbbsins, þar á meðal forseti gengisins hér á landi, Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, ásamt félaga sínum, Davíð Frey Rúnarssyni, voru handteknir fyrir skömmu eftir að þeir eiga að hafa beitt mann, sem þeir réðust á og héldu nauðugum, hrottalegum hótunum og ofbeldi.

Þeir eru sakaðir um að hafa barið hann klukkustundum saman í höfuðið og líkama með ýmsum áhöldum, hýtt hann með þykkri rafmagnssnúru og hótað honum að skornar yrðu í sundur sinar á fótleggjum og tennur dregnar úr honum. Þeir sögðu fórnarlambinu að það skuldaði þeim tíu milljónir króna.

Enn fremur hefur lögreglan fengið upplýsingar um að Davíð Freyr hafi svipt annan mann frelsi og haldið föngnum og misþyrmt í bifreið og í iðnaðarhúsnæði. Rannsókn þessa máls er á frumstigi, að því er fram kemur í gögnum frá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, sem send voru Hæstarétti.

Ríkharð hefur hafið afplánun á glæpi sem hann var dæmdur fyrir á síðasta ári. Þá kveikti hann í húsi ásamt félögum sínum á meðan íbúinn var enn inni. Hann komst út við illan leik og voru brennuvargarnir handteknir í kjölfarið.

Heimildarmaður sem Vísir ræddi við og er kunnugur heimi vélhjólagengja hér á landi, sagði mikinn mun á milli Outlaws gengisins og Hells Angels. Vélhjólagengin tvö eru svarnir óvinir erlendis en hér á landi hafa félagsmenn látið hvorn annan í friði. Ríkislögreglustjóri óttast þó átök.

Heimildarmaður Vísis segir það hafa komið sér á óvart hversu fljótt Black Pistons fór úr því að vera stuðningsklúbbur Outlaws yfir í að vera prospect, eins og það er kallað. Í tilviki Hells Angels þá var vélhjólaklúbburinn Fáfnir áhangandi í nokkur ár áður en klúbburinn varð Hells Angels prospect. Þeir urðu svo fullgildir meðlimir tæplega tveimur árum síðar, eftir að hafa reynt að komast í klúbbinn í um áratug.

„Það kæmi því ekki á óvart að Black Pistons væru orðnir fullgildir meðlimir Outlaws innan örfárra mánaða,“ sagði heimildarmaður Vísis um þróun klúbbsins sem virðist hraðari en hjá Hells Angels.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni þá fylgist greiningadeild lögreglunnar náið með vélhjólagengjum hér á landi.


Tengdar fréttir

Gæsluvarðhald yfir Black Pistons staðfest í Hæstarétti

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að tveir meðlimir vélhjólasamtakanna Black Pistons verði í gæsluvarðhaldi til 27. maí á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir eru grunaðir um að hafa haldið þriðja manninum nauðugum í yfir hálfan sólarhring og barið hann illilega. Sá var nefbrotinn og með áverka víðs vegar um líkamann. Talið er að um uppgjör innan vélhjólaklúbbsins hafi verið að ræða, en annar hinna handteknu er forsprakki Black Pistons á Ísland.

Black Pistons félagar áfram í haldi lögreglu

Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 23. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Þá hefur karlmaður á fertugsaldri hafið afplánun á eftirstöðvum af 2 ára dómi sem hann fékk fyrir að bera eld að húsi.

Rannsaka fleiri brot félaga í Black Pistons

Tveir meðlimir vélhjólagengisins Black Pistons beittu mann, sem þeir réðust á og héldu nauðugum fyrr í mánuðinum, hrottalegum hótunum og ofbeldi. Þeir börðu hann klukkustundum saman í höfuðið og líkama með ýmsum áhöldum, hýddu hann með þykkri rafmagnssnúru og hótuðu honum að skornar yrðu í sundur sinar á fótleggjum og tennur dregnar úr honum. Þeir sögðu fórnarlambinu að það skuldaði þeim tíu milljónir króna.

Óttast átök Black Pistons og Hells Angels

Black Pistons er stuðningsklúbbur Outlaws, sem eru ein stærstu vélhjólasamtök heims, og nær alls staðar skilgreind sem skipulögð glæpasamtök.

Foreldrar fórnarlambs njóta verndar vegna vélhjólagengis

Foringi vélhjólaklúbbsins MC Black Pistons er einn þeirra sem er í haldi lögreglunnar grunaður um að hafa misþyrmt karlmanni hrottalega á þriðjudaginn. Samkvæmt fréttum RÚV í kvöld þá nýtur fjölskylda fórnarlambsins verndar eftir að tveir meðlimir gengisins á að hafa reynt að hafa reynt að hafa áhrif á rannsókn málsins.

Innbyrðis deilur í Black Pistons

Tveir karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir eftir frelsissviptingu og ítrekaðar líkamsárásir á karlmann á þrítugsaldri. Allir mennirnir tengjast Black Pistons afbrotagenginu samkvæmt heimildum fréttastofu. Eftir að hafa verið haldið nauðugum í rúmlega hálfan sólarhring, komst þolandinn út úr bíl árásarmannanna, þegar þeir voru að flytja hann milli staða í fyrradag, og bjargaði sér á hlaupum.

Forsprakki vélhjólagengis í einangrun

Forsprakki vélhjólagengisins Black Pistons, Ríkharð Júlíus Ríkharðsson, situr nú í gæsluvarðhaldi og einangrun, ásamt öðrum meðlimi gengisins, Davíð Frey Rúnarssyni, eftir að þeir réðust á mann og héldu honum nauðugum í meira en hálfan sólarhring, að því er talið er. Þá hafa tveir meðlimir Black Pistons verið kærðir fyrir að reyna að hafa áhrif á rannsókn málsins.

Black Pistons meðlimir áfram í gæsluvarðhaldi

Tveir meðlimir vélhjólasamtakanna Black Pistons hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Við munum ekki líða neina vitleysu

„Við munum ekki líða neina vitleysu,“ segir Páll E. Winkel forstjóri Fangelsismálastofnunar, spurður um viðbrögð fangelsismálayfirvalda við því að vista nú tvo menn úr íslenska vélhjólagenginu Black Pistons í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×