Forseti þingsins rak þingmann úr ræðustóli 30. maí 2011 14:49 Höskuldur Þórhallsson var skipað að stíga úr ræðustóli.
Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, var rekinn úr fundarstóli í morgun þegar rætt var um fundarstjórn forseta. Höskuldur ætlaði þá að svara Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra sem áður hafði verið í óundirbúnum fyrirspurnum, en hann sætti sig ekki við þau svör sem hann hafði fengið frá ráðherranum, um framkvæmdir á Bakka. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti þingsins, brást ókvæða við þegar Höskuldur ætlaði að fara að ræða um svör Katrínar og byrjaði að slá bjölluna af krafti. „Ekki efnisleg umræða hér," sagði Ásta þá og sló aftur í bjölluna svo það glumdi. Höskuldur lét sér þó ekki segjast og hélt ótrauður áfram og sagðist hafa fengið yfir sig fúkyrðaflaum frá iðnaðarráðherranum. Hann komst ekki mikið lengra fyrir bjölluslætti Ástu Ragnheiðar. „Forseti Alþingis biður þingmann um að víkja úr fundarstól," sagði Ásta og litlu mátti muna að það syði beinlínis upp úr. Ásta bað þingmanninn aftur um að víkja úr ræðustól en Höskuldur snérist þá til varnar og sagðist eingöngu vera að biðja forseta um að beita sér fyrir því að ráðherra svaraði með málefnalegum hætti en ekki með fúkyrðaflaumi. Brást Ásta Ragnheiður þá við með því að fresta fundi um fimm mínútur. „Það er ótrúleg skömm að fundarstjórn forseta hérna," sagði Höskuldur þá og vék loks úr fundarstól. Ekki náðist í Höskuld vegna málsins þegar eftir því var leitað þar sem hann var staddur á þingflokksfundi Framsóknarflokksins. Myndbandið af atvikinu má hinsvegar skoða hér.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Fleiri fréttir „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Sjá meira