Erfitt að skylmast við fræðslustjóra Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. febrúar 2011 14:52 Guðrún Valdimarsdóttir er formaður SAMFOK. „
Það er erfitt að skylmast um tölur við fræðslustjóra eða aðra fulltrúa borgarinnar þegar þeir velja að ræða við foreldra reykvískra barna í þoku blekkingar og leyndarhjúps," segir Guðrún Valdimarsdóttir, formaður SAMFOKS, samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík. Ragnar Þorsteinsson, fræðslustjóri í Reykjavík, segir misskilnings gæta þegar því er haldið fram að hagræða þurfi í rekstri grunnskóla Reykjavíkurborgar um 800 milljónir. Eftir að Reykjavíkurborg samþykkti 200 milljóna króna aukafjárveitingu á borgarráðsfundi í dag sé nær að tala um að niðurskurðurinn sé um 200 milljónir. Þessu mótmælir Guðrún. „Samkvæmt orðum þeirra sjálfra hafði verið ákveðið að draga saman útgjöld á menntasviði um einn milljarð króna á árinu 2011 miðað við árið 2010. Þegar ákveðið er að slaka 200 milljónum til baka er nokkuð augljóst að eftir stendur að draga saman eigi útgjöld um 800 milljónir króna til menntasviðs borgarinnar í það heila. Þetta er á sama tíma og börnum er að fjölga á skólaskyldualdri og þegar almennar kostnaðarhækkanir hafa orðið," segir Guðrún í yfirlýsingu frá SAMFOK. Guðrún segir að til að standa í stað hefði því ekki dugað að verja sömu upphæð til menntasviðs og áður heldur hefði þurft að bæta við til að vega upp á móti fjölgun nemenda og hækkunar verðlags. „Þrátt fyrir fullyrðingar um annað í fjölmiðlum þá hefur ekki verið horfið frá niðurskurði í grunnskólum og svo sannarlega er ekki verið að bæta í frá fyrra ári," segir Guðrún. Guðrún segir að framundan sé eftir sem áður krafa um a.m.k. tugmilljóna niðurskurð á grunnskólana sem geti ekki brugðist við þeirri kröfu án þess að skerða þjónustu við nemendur. Hún segir að forráðamönnum borgarinnar væri sæmst að setjast nú yfir þessi mál með foreldrum og ræða málin af heiðarleika en ekki að reyna að blekkja þá með skrumskælingu á staðreyndum. Foreldrar í Reykjavík eru einnig skattgreiðendur og kjósendur í Reykjavík. Þeir vilja að þeim sé sýnd virðing og komið heiðarlega fram við þá. SAMFOK hefur efnt til samstöðufundar í dag sem hefst á Skólavörðuhloti klukkan hálffimm.
Tengdar fréttir Segir niðurskurð til grunnskóla nema 200 milljónum ekki 800 Ragnar Þorsteinsson, fræðslustjóri í Reykjavík, segir misskilnings gæta þegar því er haldið fram að hagræða þurfi í rekstri grunnskóla Reykjavíkurborgar um 800 milljónir. Því hefur verið haldið fram í opinberri umræðu að í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar hafi staðið til að skera niður um 1000 milljónir í rekstri grunnskóla. Nú standi hins vegar eftir 800 milljóna króna niðurskurður eftir að Reykjavíkurborg hafi, fyrr í vikunni, ákveðið að auka fjárheimildir um 200 milljónir. 17. febrúar 2011 09:52 Mest lesið Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Innlent Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Innlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Fleiri fréttir Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Margfaldur þungi í loftárásum og kyntákn kveður Afbrot, fjölmiðlastyrkir og stefna Miðflokksins Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Líkamsárás í miðbænum Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Sjálfvirkir lyfjaskammtarar borgi sig tvöfalt til baka Tilhæfulaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Frumkvæðisvinna lögreglu að loka fjórum afhendingarstöðum „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Kjartan sækist ekki eftir endurráðningu sem bæjarstjóri Landeldi í vexti og lögregla lokar áfengisverslunum Árekstur á Suðurlandsbraut Ekki talinn tengjast aukinni eldvirkni Handteknir grunaðir um framleiðslu fíkniefna Jarðskjálfti við Kleifarvatn Lögreglumenn eltu lausa hesta Lögregla lokaði Smáríkinu og Nýju vínbúðinni Stöðvuðu menn í ofbeldishug við landamærin Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Dæmdur fyrir líkamsárás í matsalnum Engir ælupokar notaðir, þetta var núllpokaflug Hafði komið sér fyrir á háalofti hótels Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Sjá meira
Segir niðurskurð til grunnskóla nema 200 milljónum ekki 800 Ragnar Þorsteinsson, fræðslustjóri í Reykjavík, segir misskilnings gæta þegar því er haldið fram að hagræða þurfi í rekstri grunnskóla Reykjavíkurborgar um 800 milljónir. Því hefur verið haldið fram í opinberri umræðu að í fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar hafi staðið til að skera niður um 1000 milljónir í rekstri grunnskóla. Nú standi hins vegar eftir 800 milljóna króna niðurskurður eftir að Reykjavíkurborg hafi, fyrr í vikunni, ákveðið að auka fjárheimildir um 200 milljónir. 17. febrúar 2011 09:52