Tugir kílóa af fíkniefnum teknir í íslenskri höfn Andri Ólafsson skrifar 30. október 2011 18:30 Karlmaðurinn var í Leifsstöð þegar hann var handtekinn.
Karlmaður á fimmtugsaldri var handtekinn í Leifsstöð í nótt grunaður um að vera höfuðpaur í einu umfangsmesta fíknefnamáli ársins. Hann er annar maðurinn sem er handtekinn vegna málsins sem hefur verið til rannsóknar í marga mánuði og snýst um innflutning á verulegu magni af fíkniefnum. Í byrjun mánaðarins lagði lögreglan hald á sendingu sem kom hingað til lands með gámaskipi frá Hollandi. Í sendingunni voru, samkvæmt heimildum fréttastofu, einhverjir tugir kílóa af fíkniefnum, meðal annars e-pillur, kókaín, amfetamín og sterar. Sendingin var stíluð á lítið heildsölufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu og skömmu síðar var einn starfsmaður þess handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Það var gert þann. 11 október síðastlinn. Athygli vekur að þessi starfsmaður er á sextugsaldri, nýorðinn afi, og hefur aldrei komið við sögu lögreglu áður, sem þykir nokkuð óvenjulegt í málum sem þessum. En rannsókn lögreglu var ekki lokið, því höfuðpaurinn, sá sem sendi efnin hingað til lands, var enn ófundinn. Fljótlega fóru að böndin að berast til Spánar. Þar er búsettur Íslendingur á fimmtugsaldri sem áður hefur fengið dóma fyrir fíkniefnainnflutning og er grunaður um að hafa skipulagt innflutninginn með gámaskipinu frá Hollandi. Hann flaug til Íslands í nótt. Lögreglan beið eftir honum og handtók hann um leið og vélin lenti. Hann verður úrskurðaður í gæsluvarðhald og því eru nú tveir í haldi vegna málsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu er rannsókn lögreglu afar umfangsmikil og hefur meðal annars verið stuðst við símhleranir. Enda er þetta langstærsta fíkniefnamál sem komið hefur upp á árinu.
Mest lesið Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Innlent Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Erlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Innlent Staðfesta hnífstunguárás: Gerandinn handtekinn Fréttir Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Erlent Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Innlent Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Fleiri fréttir Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Akreinum fækki þó bílum fjölgi: Flöskuhálsinn ekki endilega fjöldi akreina Hús bleikjuvinnslu varð að Syndabæli Kominn á sjúkrahús eftir krefjandi ferð Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Sjá meira
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent
Saka meirihlutann um að slá ryki í augu borgarbúa: Krefjast svara um tilhögun upplýsingagjafar Innlent