Auki tekjur ríkissjóðs um tæpa 10 milljarða 4. nóvember 2011 08:00 Steingrímur mælti fyrir frumvörpunum í gær og voru þau tekin til fyrstu umræðu og send í nefndir.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra mælti í gær fyrir frumvarpi um ráðstafanir í ríkisfjármálum, frumvarpi um nýjan fjársýsluskatt og frumvarpi um lokafjárlög ársins 2010. Frumvarp um ráðstafanir í ríkisfjármálum og frumvarp um fjársýsluskatt eru liðir í sérstökum tekjuöflunaraðgerðum fjárlagafrumvarpsins fyrir næsta ár. Með aðgerðunum á að auka tekjur ríkisins um 9,7 milljarða. Fjársýsluskattur er nýr skattur sem leggst á fjármálafyrirtæki, vátryggingafélög og lífeyrissjóði meðal annars. Íbúðalánasjóður er eina opinbera stofnunin í bili sem mun þurfa að borga skattinn, sem er 10,5 prósent. Fjársýsluskattur skal borgaður af öllum tegundum launa eða þóknana fyrir starf. Skattinum er ætlað að skila ríkinu 4,5 milljörðum í tekjur. Þá kveður frumvarpið á um að dregið verði úr frádráttarbærni iðgjalda vegna viðbótarlífeyrissparnaðar, svo að hámark launþega verði tvö prósent af launum í stað fjögurra prósenta áður. Þetta er talið munu skila 1,4 milljörðum króna. Tekið verður upp viðbótarskattþrep fyrir auðlegðarskatt, en tekjur af því eiga að vera nálægt 1,5 milljörðum. Innleiðing kolefnisgjalds verður lokið og á það að skila 800 milljónum króna. Loks á að hækka veiðigjald frekar og fá þannig inn 4,5 milljarða króna á ársgrundvelli, en 1,5 milljarða á næsta ári. Þessar breytingar verða lagðar fram í frumvarpi um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða. - þeb
Mest lesið Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Réttarhöldunum yfir Clancy lauk án niðurstöðu Erlent Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Innlent Enginn andvígur hvalveiðum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Skordýr í súpu skólabarna Innlent Segja ekkert um svörin við yfirheyrslu Trumps Erlent Fleiri fréttir Kýld niður fjallið og svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Sjá meira