Portúgalir trylltust yfir Bloodgroup 24. janúar 2011 00:01 Bloodgroup er á tónleikaferðalagi um Evrópu. „
Það var svo mikill hávaði að heyrnin í mér datt út á tímabili," segir Ragnar Láki, einn af hljómborðsleikurum hljómsveitarinnar Bloodgroup. Bloodgroup er nú á heljarinnar tónleikaferðalagi um Evrópu sem stendur yfir í meira en mánuði. Hljómsveitin fór til Frakklands í síðustu viku og þaðan til Portó í Portúgal þar sem hún kom fram fyrir 2.000 tryllta námsmenn. „Það var allt vitlaust. Ég hef aldrei á ævinni heyrt meiri hávaða en í áhorfendum eftir tónleikana," segir Ragnar. Bloodgrop hélt svo til Lissabon og svo áleiðis til Spánar. Ragnar segir tónleikaferðalagið hafa verið mjög vel heppnað hingað til, flestir staðirnir hafa troðfyllst og tónleikarnir í settu ný viðmið. „Þetta voru langstærstu tónleikarnir hingað til," segir Ragnar. „Þetta eru svona 200 til 500 manna staðir sem við spilum í. Svipað og meðal íslenskur tónleikastaður. Það er komin gríðarmikil gleði í mannskapinn yfir þessu." Það getur reynst erfitt að viðhalda góðri stemningu í hópum í löngum ferðalögum á borð við þetta, en Ragnar segir að meðlimir Bloodgroup séu ennþá sáttir. „Það er aldrei að vita hvað gerist á næstu vikum," bætir hann við í gríni. Meðlimir Bloodgroup hafa nýtt frítíma sinn, sem er oftast í rútunni á milli landa, í að forrita ljósasýningu næstu tónleika. Þá hafa þau aðeins náð að fylgjast með strákunum okkar á heimsmeistaramótinu í handbolta sem fer nú fram í Svíþjóð. „Við náðum með hjálp lélegrar nettengingar á frönsku rívíerunni að sjá seinni hálfleik í einum leik," segir Ragnar. „Það er mjög mikilvægt að horfa á strákanna." atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Stór brjóst eru stór Lífið Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Lífið „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Lífið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Lífið Fleiri fréttir „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Sjá meira